Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

3-1 tap gegn Selfyssingum

24. júní 2011 klukkan 10:39
Í gærkvöldi heimsóttu Víkingar Selfyssinga í 8. umferð 1. deildar sem hófst með þremur leikjum. Leikurinn var einungis 6 mínútna gamall þegar heimamenn komust yfir. Þar var að verki Babacar Sarr eftir hornspyrnu. Víkingar vildu þó meina að í aðdragandanum hefðu heimamenn gerst brotlegir auk þess sem Babacar fór nánast með sólann í grímuna á Einari þegar hann kom knettinum í markið.

 

Fimmtán mínútum síðar syrti enn í álinn hjá Víkingum þegar heimamenn komust í 2-0 þegar Endre Brenne náði að komast inn fyrir vörn Víkina við illan leik. Endre braut þá augljóslega á Emir Dokara í vörn Víkings sem lá eftir alblóðugur. Hvorki Leikni Ágústssyni né aðstoðarmanni hans á línunni láðist að sjá brotið og staða heimamanna því vænleg.

 

Víkingar höfðu hins vegar ekki sagt sitt síðasta því á 44. mínútu tókst Edin Beslija að minnka muninn. Það gerði hann eftir vel útfærða aukaspyrnu ásamt Brynjari Kristmundssyni og Eldar Masic. Skot Edins var bæði fast, hnitmiðað og í bláhornið framhjá Jóhanni í marki Selfyssinga.

 

Víkingar voru staðráðnir í að láta kné fylgja kviði og í uppbótartíma fyrri hálfleiks komst Þorsteinn Már Ragnarsson einn inn fyrir vörn heimamanna. Artjoms gaf þá góða sendingu inn fyrir vörn Selfyssinga og Þorsteinn var við það að komast í ákjósanlegt færi. Þá tók Leiknir dómari leiksins upp á því að flauta til loka fyrri hálfleiks sem er í besta falli mjög athugavert.

 

Í síðari hálfleik komu Víkingar sterkir til leiks og ákveðnir í að jafna metin. Þeir voru ýfið sterkari fyrsta stundarfjórðunginn en án þess þó að skapa sér afgerandi færi. Þrátt fyrir ágætis tilraunir náðu Víkingar ekki að jafna og þess í stað náðu heimamenn að auka forskot sitt. Jón Daði Böðvarsson átti þá góða rispu og spólaði sig í gegnum vörn Víkings og sendi boltann á Ibrahima Ndiaye sem skoraði auðveldlega.

 

Eftir þetta var róðurinn þungur fyrir Víkinga en hvorugu liðinu tókst að bæta við marki það sem eftir lifði leiks. Með sigrinum styrkti Selfoss stöðu sína í 2. sæti deildarinnar en Víkingar eru sem fyrr níunda með 9 stig.  Næsti leikur Víkings verður háður á Ólafsvíkurvelli næstkomandi miðvikudag þar sem KA-menn koma í heimsókn. Allir á völlinn!

Mynd: Þröstur Albertsson

 
helgi
Já þetta er leikur sem best er að gleyma sem fyrst. Þurfum ekki að fara aftur á þennan erfiða útivöll. Eins og ég sagði einhverstaðar í vor, þá skulum við einbeita okkur á að vinna sem allra flesta leiki á heimavelli og reyna síðan að ná 3-4 sigrum á útivelli, ásamt 2-3 jafnteflum og þá endum við í góðu sæti í haust. Það er nóg eftir af stigum. Sigurinn á HK og jafnteflið gegn ÍA eru góð úrslit á útivöllum og nú þarf að vinna næsta heimaleik gegn KA. Við ættum að geta unnið alla heimaleikina sem eftir eru með réttu hugarfari og trú. Áfram Vikingur Ó.
#1
25. júní 2011 klukkan 00:58
 
Erling R Huldarsson
Mér er óskiljanlegt hvað þið sjáið að þessu nema ef vera skildi umtalaður háskaleikur.
#2
29. júní 2011 klukkan 10:04

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?