Víkingar međ sex leikmenn í liđi ársins
21. september 2010 klukkan 22:32
Víkingar voru atkvæðamiklir þegar fotbolti.net opinberaði lið ársins í 2. deild í Gyllta salnum á Hótel Borg nú síðdegis. Alls áttu Víkingar 6 liðsmenn í liðinu og kom það í hlut þjálfara og fyrirliða deildarinnar að velja lið sumarsins. Liðið er þannig skipað að Einar Hjörleifsson stendur í markinu, í vörninni eru þeir Brynjar Kristmundsson, Brynjar Gauti, Tomasz Luba og Anton Ásvaldsson (Hetti). Á miðjunni áttu Víkingar einn fulltrúa en það er Eldar Masic. Með Eldar eru þeir Stefán Eyjólfsson (Hetti) og Emil Pálsson (BI/Bolungarvík). Það þarf fáum að koma á óvart að Þorsteinn Már Ragnarsson er einn af þremur sóknarmönnum í liði ársins en með honum eru Andri Rúnar Bjarnason og Jónmundur Grétarsson sem báðir leika með BÍ/Bolungarvík.
Okkar maður Ejub Purisevic var kjörinn þjálfari ársins, Brynjar Gauti leikmaður ársins og Þorsteinn Már sá efnilegasti. Það má því með sanni segja að tímabilið hafi endað með miklum glæsibrag og eru okkar menn vel að þessu komnir.
Víkingurol.is óskar strákunum sem og öðrum leikmönnum til hamingju því ekkert af þessu væri mögulegt ef ekki væri fyrir góða liðsheild. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og með því smella á þær er hægt að sjá þær stærri.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|










ÁFRAM Víkingur Ó .