Brynjar Gauti í 22 manna hóp U-19
20. september 2010 klukkan 17:03
Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði Víkings Ó. var í síðustu viku valinn í 22 manna hóp U-19 ára landsliðs Ísland sem mætir Norður-Írum í tveimur æfingaleikjum sem fara fram í þessari viku. Sá fyrri stendur núna yfir og er háður á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði. Seinni leikurinn verður næstkomandi miðvikudag eða þann 22. september. Sá leikur verður háður á Fylkis-velli og hefst leikurinn kl. 16:00. Víkingurol.is verður af sjálfsögðu á staðnum og mun fylgjast með gangi mála.
Helgi
Ég hefði viljað sjá Brynjar Kristmundsson líka í hópnum.
#1
20. september 2010 klukkan 20:15
#2
20. september 2010 klukkan 21:20


