1-0 sigur á Hamri í baráttuleik
28. ágúst 2010 klukkan 17:22
Það var blíðskapar verður í Ólafsvík þegar heimamenn í Víking tóku á móti Hamarsmönnum frá Hveragerði í dag. Ólafsvíkurvöllur skartaði sínu fegursta og voru aðstæður til knattspyrnuiðkunnar eins og best verður á kosið, sól og örlítill andvari frá Norð-Austri.
Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 3. mínútu leiksins fengu heimamenn aukaspyrnu þegar brotið var á Artjoms Goncars rétt fyrir utan vítateig. Kristján Óli Sigurðsson tók spyrnuna og fyrna fast skot hans fór rétt yfir þverslánna og Björn í marki Hamars.
Þrátt fyrir góða byrjun beggja liða létu marktækifærin á sér standa en á 29. mínútu var Helgi Óttarr Hafsteinsson nálægt því að nýta sér mistök Björns í marki Hamars sem kastaði boltanum beint á Þorstein Már Ragnarsson í framlínu Víkings. Þorsteinn lagði boltann út á Helga en Björn náði að verja skot Helga og bjargaði því sem bjargað var.
Eins og fyrr segir var lítið um opin marktækifæri og einkenndust tilraunir beggja liða af skotum fyrir utan teig sem rötuðu oftar en ekki á ramman. Hættulegustu færin komu eftir föst leikatriði en á 37. Mínútu varði Björn í marki Hamars stórglæsilega í tvígang eftir hornspyrnu heimamanna. Fyrst skot Kristjáns Óla af stuttu færi og svo bakfallspyrnu Þorsteins en að lokum tókst varnarmönnum gestanna að koma boltanum út úr teignum.
Fátt markvert gerðist það sem eftir var fyrri hálfleiks og var staðan því 0-0 þegar Ingvar Örn Gíslason dómari flautaði til leikhlés. Strax í upphafi seinni hálfleiks vildu heimamenn fá víti þegar þeir töldu að brotið hefði verið á Þorsteini inn í vítateig. Ingvar dómari var ekki á sama máli og fengu heimamenn hornspyrnu sem þeim tókst ekki að nýta. Víkingar settu mikla pressu á Hamarsmenn í kjölfarið en þrátt fyrir ágætar tilraunir tókst þeim ekki að koma knettinum í netið.
Víkingar fengu hættulegri færi í síðari hálfleik og eitt af þeim fékk ALeksandrs Cekulajevs á 62. mínútu. Þorsteinn Már sendi þá góða sendingu inn fyrir vörn Hamars þar sem Aleks var mættur en skaut knettinum yfir af stuttu færi. Á 78. Mínútu átti Einar í marki Víkings svo glæsilega stungusendingu á Edin Beslija sem fór illa með ákjósanlegt færi og skaut knettinum yfir markið. Tveimur mínútum síðar dró til tíðinda þegar fyrirgjöf Artjoms Goncars endaði í marki Hamars en Helgi Guðnason varð fyrir því óláni að breyta stefnu knattarins með fyrrgreindum afleiðingum. Víkingar þar með komnir með forystu og stutt eftir af leiknum.
Víkingar fengu færi til að bæta við en Björn í marki Hamars var vel á verði auk þess sem sóknarmenn Víkings voru langt frá sínu besta í dag. Leiknum lauk engu að síður með sigri heimamanna sem tróna á toppi deildarinnar með 49 stig.
Leikurinn fór fjörlega af stað og strax á 3. mínútu leiksins fengu heimamenn aukaspyrnu þegar brotið var á Artjoms Goncars rétt fyrir utan vítateig. Kristján Óli Sigurðsson tók spyrnuna og fyrna fast skot hans fór rétt yfir þverslánna og Björn í marki Hamars.Þrátt fyrir góða byrjun beggja liða létu marktækifærin á sér standa en á 29. mínútu var Helgi Óttarr Hafsteinsson nálægt því að nýta sér mistök Björns í marki Hamars sem kastaði boltanum beint á Þorstein Már Ragnarsson í framlínu Víkings. Þorsteinn lagði boltann út á Helga en Björn náði að verja skot Helga og bjargaði því sem bjargað var.