Hvöt - Víkingur Ó. | Bein lýsing (0-1)
21. ágúst 2010 klukkan 13:41

Leik lokið á Blönduósi þar sem Víkingar fóru með sigur af hólmi 0-1! Sanngjarn sigur af mínu mati og þeir hérna í vallarhúsinu á Blönduósi eru sammála mér enda höfðingjar heim að sækja. Verð að hæla þeim fyrir gestrisni og góðar móttökur. Víkingar fagna nú úti á velli!!!
93. mín: Hvatarmenn stálheppnir að fá ekki dæmda á sig vítaspyrnu því Þorsteinn var fifinn niður í teignum! Einar spark nú frá markinu!
90 mínútur komnar á klukkuna, við sækjum núna... Artjoms með innkast frá hægri.. Sindri Már sem kom inná fyrir stuttu brýtur á varnarmanni og Atli sparkar frá markinu!
87. mín: KOMIÐ ÖLL SÆL OG BLESSSUÐ... MAAAAAAAAAAARRK! VÍKINGAR ERU AÐ SKORA! HVER ANNAR EN ÞORSTEINN MÁR RAGNARSSON! Sá ekki alveg aðdragandann en hann slapp innfyrir vörnina og setti boltann snyrtilega framhjá Atla í markinu! 0-1 Víkingum í vil!
83. mín: HOrnfrá hægri sem hvatarmenn hreinsa. Við byggjum upp sókn núna frá vinstri.. Hvatar-menn verjast vel...
80. mín: Þorsteinn með skot að marki sem er víðsfjarri. Það er farið að blása enn meira hérna á Blönduósi en við byggjum nú upp enn eina sóknina hérna í síðari hálfleik. Við verðum samt að passa okkur á því að fá ekki á okkur skyndisóknir en við pressum heimamenn hátt uppi. Reyndar gerir Hvatar-mönnum erfitt fyrir að vindurinn blæs boltanum mun hraðar en venjulega.
79. mín: Fannar kemur nú inn fyrir Heiðar. Fannar fer á hægri kantinn en auk þess getur hann látið til sín taka í teignum!
72. mín: Hvatarmenn með skot sem er ekki fjarri lagi.. Einar kemur knettinum strax í leik og við brunum fram.
70. mín: Enn eitt hornið sem við fáum, nú frá vinstri, heimamenn hreinsa og Einar setur boltann strax í leik. Eldar nú með sendingu inn, Helgi með sendingu á Aleks sem sendir fyrir á Heiðar sem á skot sem fer með jörðinni og ca. 2 metrum frmhjá markinu.
67. mín: Þorsteinn gerir sig klárann fyrir að koma inn... líklega fyrir KRistján sem hefur ekki alveg komist í takt hérna í síðari hálfleik. Júbb, mikið rétt. Kristján kemur út fyrir Þorstein.
66. mín: Heimamenn skipta um leikmann. Jón Kári Eldon kemur inn fyrir Hilmar Kárason.
65. mín: Enn eitt hornið.... BK tekur það hægra megin..... heimamenn hreinsa!
61. mín: Við reynum að teygja á heimamönnum. vörnin hjá Hvöt er sterk og vindurinn gerir okkar mönnum erfitt fyrir. Við eigum nú hornspyrnu......Stjáni með skot eftir hornið og boltinn í varnarmann og framhjá, annað horn....Heimamenn bjarga á línu og svo fyrirgjöf frá BK sem Atli grípur auðveldlega.
59. mín: Aukaspyrna á stórhættulegum stað. Artjoms og Stjáni standa yfir knettinum. Edin með skotið sem er alltaf laust og Atli grípur boltann auðveldlega.
54. mín: Helgi Óttarr með hörkuskot sem fer rétt framhjá og í hliðarnetið! Munaði litlu þarna. Brotið á Einari hinum megin og hann sparkar nú frá markinu.
53. mín: ANnað horn... núna frá vinstri..... tekið stutt, Artjoms svo með fyrirgjöf sem fer á fjær og aftur fyrir endalínu.
50. mín: Góður Gunnsteinn, bara vonandi að Víkingar setji sig í sama stand og Skytturnar. Við eigum horn núna frá hægri.... Hvatar-menn hreinsa!
47. mín: Þorsteinn er farinn að hita upp! Víkingar byggja nú upp sókn en við komum vel stemmdir til leiks í síðari hálfleik.
Liðin eru komin aftur á völlinn og dómarinn flautar nú leikinn af stað á ný!
Kominn hálfleikur á Blönduósi þar sem leikar standa 0-0! Okkar sterkari að mínu mati en Hvatarmenn hafa einnig átt sína sjensa. Veðrið setur auðvitað sinn svip á leikinn en vindurinn er mikill og kuldinn eftir því. Það er reyndar hætt að rigna svo það jákvætt! Það er jú gaman að minnast á það mínir menn í Arsenal eru 3-0 yfir í hálfleik gegn spútnik liðinu Blackpool!!!!
45. mín: Þorsteinn er á bekknum, er ekki alveg frískur, er búinn að vera glíma við flensu síðustu daga og Ejub ákvað að eiga hann inni. Hann svaf alla leiðina í rútuni og ég er ekki viss um að Ejub geti notað hann. Svo erum við með Fannar á bekknum sem er tæpur, Dominik tæpur einnig, Sindra ferskann og gamla manninn hann Suad Begic sem gæti líklega hlupið tvö Reykjavíkurmaraþon :)
42. mín: Kristján Óli með skot sem hátt yfir... Artjoms núna með glórulausa fyrirgjöf og Atli í marki Hvatar sparkar núna frá marki sínu.
EINAR VEEEEEEEEEEEEEEEEEEEER! !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Einar ver vítaspyrnuna sem hann hafði reyndar fengið á sig. Einar gerðist brotlegur að mati dómarans en Einsi svaraði bara fyrir sig og varði vítið, sem var reyndar í lakari kantinum.
39. mín: Hvöt að fá vítaspyrnu..... Einar til varnar!
34. mín: Við eigum nú aukaspyrnu á hættulegum stað... Kristján Óli átti afleitt skot sem fór í varnarvegginn. Við erum að spila ágætlega. Ég vil nú ekki ganga svo langt og segja að við höfum spilað illa á móti Aftureldingu. Það voru einfaldlega miklar breytingar í þeim leik. En við erum ákveðnir núna og eru mjög vel inn í þessum leik.
31. mín: Fyrsta snertingin hans Aleks að bregðat honum rétt í þessu en hann hefði með góðu móti geta komist inn fyrir vörn heimamanna en eins og fyrr segir þá var fyrsta snertingin hans arfaslök! Við eigum nú horn sem BK tekur......Ekkert verður úr horninu!
Byrjunarlið Víkings: Einar í markinu, í vörninni standa, Brynjar Kristmunds, Tomasz, Gauti og Artjoms. Á miðjunni eru Helgi, Eldar, og Edin. Á köntunum eru Heiðar og Stjáni en einn frammi er Aleks.
27. mín: Einar nú að grípa vel inn í en Einsi kemur aftur inn í liðið eftir að hafa átt við smávæginleg meiðsli. Ejub er ekki alveg nógu sáttur við spilamennsku okkar manna þessa stundina og sendir strákunum tóninn. Mér finnst eins og við eigum örlítið inni .
23. mín: Heimamenn í ákjósanlegu færi en skot þeirra var langt framhjá markinu. Sjensinn var góður en skotið hefði mátt verið hnitmiðara, kemur sér reyndar mjög vel fyrir okkur. Við erum fljótir að vinna boltann af Hvatar-mönnum þegar við missum hann en nú byggjum við upp sókn frá hægri sem endar með því að Edin er dæmdur rangstæður.
20. mín: Edin með samskonar skot og fyrir einni mínútu, Atli varði aftur en var nálægt því að missa knöttinn en náði að grípa hann áður en Aleks kom á fullri ferð.
19. mín: Edin með fínasta skot sem Atli heldur í rigninguni. Víkingar sækja nú grimmt og starfsmönnum vallarhússins á Blönduósi er alveg hætt að lítast á blikuna.
16. mín: Við eigum nú aukaspyrnu á hættulegum stað sem Atli ver beint út í teiginn þar sem Aleks kom og fylgdi eftir en einhvernveginn í ósköpunum tókst Atla í marki Hvatar að verja með því að slæma fóti í knöttinn. Aleks var einn á móti Atla inn í markteig, þarna hefðum við átt að ná forystu! Aukaspyrnuna tók Tomasz. Staðan enn 0-0!
12. mín: Já sæl öllsömul, gaman að sjá hversu margir eru að melda sig inn í dag. Veðrið hér á Blönduósi hefur oft verið betra, en hér er Norðann vindur og nú rétt í þessu var að byrja að rigna. Veðrið er hreinn viðbjóður Hreinn:) En strákarnir láta það vonandi ekki á sig fá. Hvatar-menn áttu nú aukaspyrnu á hættulegum stað sem fór í varnarvegginn og ég verð eiginlega að viðurkenna að ég öfundaði strákana ekkert alltof mikið, þe. þá sem stóðu í veggnum.
8. mín: Kristján Óli átti ágætis skot nú rétt fyrir tæpri mínútu síðan. Víkingar fara ágætlega af stað í leiknum og eiga nokkrar tilraunir sema hafa ekki borið árangur en betur má ef duga skal.
Leikurinn er hafinn hér á Blönduósi!!!
Helga Hilmarsdóttir
Fylgist með!
#2
21. ágúst 2010 klukkan 13:46
Knarrartungubúið
Guðjón í Knarrartungu
Erá takkanum heima.
Koma svo Víkingar!!!!!!!!!!!
Erá takkanum heima.
Koma svo Víkingar!!!!!!!!!!!
#3
21. ágúst 2010 klukkan 13:46
Hreinn Jónasson
Ég er mættur, hvernig er veðrið ?
#4
21. ágúst 2010 klukkan 13:47
Olga
Ég er hérna líka og á Selfossi..........
#5
21. ágúst 2010 klukkan 13:48
bubbi
mættur eru menn að sýn betri leik en á miðvikudag?
#6
21. ágúst 2010 klukkan 14:12
Guðný í Knarrartungu
Koma svo strákar, setja nú eins og eitt mark fyrir hálfleik!!!!
Vonandi er kuldinn og rokið ekki að setja þá í einhverja vitleysu, það getur bara ekki alltaf verið sól og blíða :)
ÁFRAM VÍKINGUR!!!!!!!!!!
Vonandi er kuldinn og rokið ekki að setja þá í einhverja vitleysu, það getur bara ekki alltaf verið sól og blíða :)
ÁFRAM VÍKINGUR!!!!!!!!!!
#7
21. ágúst 2010 klukkan 14:12
Guðjón í Knarrartungu
Þetta hlýtur að fara að koma, en hvar er Þorsteinn????????
#8
21. ágúst 2010 klukkan 14:21
Olga
Vááá vítabaninn klikkar ekki !!! Frábært, nú er bara að setja mark í þetta.
#9
21. ágúst 2010 klukkan 14:22
Guðný í Knarrartungu
Góður Einsi!!!!!!!!!
KOMA SVO VÍKINGUR, MARK FYRIR HÁLFLEIK!!!!
KOMA SVO VÍKINGUR, MARK FYRIR HÁLFLEIK!!!!
#10
21. ágúst 2010 klukkan 14:25
bubbi
Er Þorsteinn á tréverkinu??? .Já Einar er ekki kallaður vítabani NO 1 að ástæðulausu
#11
21. ágúst 2010 klukkan 14:27
bubbi
Á maður að trúa því að það eigi að halda manni í háspennu fram á 88 mín kommmm onnnn strákar er að verða búinn með þær róandi
#12
21. ágúst 2010 klukkan 14:31
Gunnsteinn
Mættur. Já Gunni okkar menn 3 - 0 yfir og einum fleiri. Theo að blómstra. En áfram víkingur!!
#13
21. ágúst 2010 klukkan 14:33
Guðný í Knarrartungu
Veistu stöðuna í BÍ leiknum ??
#14
21. ágúst 2010 klukkan 14:33
#15
21. ágúst 2010 klukkan 14:35
Gunnsteinn
Ars 4 - black 0, Diaby
#16
21. ágúst 2010 klukkan 14:45
Sigrún Ó
4-0 erum í Hveró ad fylgjast með ykkur á meðan við horfum á yndislega Arsenalmenn skora og skora koma svo Víkingur !!!!
#17
21. ágúst 2010 klukkan 14:48
Guðjón í Knarrartungu
Nú kemur Þorsteinn dýrvitlaus inná og setur þrennu, sjáiði til!!!!!!!!!!
Áfram Víkingur!!!!!!!!
Áfram Víkingur!!!!!!!!
#18
21. ágúst 2010 klukkan 15:09
Guðný í Knarrartungu
Koma svo strákar ÁFRAM, þið getið þetta!
#19
21. ágúst 2010 klukkan 15:20
bubbi
88 min er þetta ekki gert fyrir ÓLA í apo
#20
21. ágúst 2010 klukkan 15:28
Guðný í Knarrartungu
JÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!! klára þetta svooo ...
#21
21. ágúst 2010 klukkan 15:29
Guðjón í Knarrartungu
Glæsilegt!!!!!!!!! Áfram Víkingar
#22
21. ágúst 2010 klukkan 15:29
Helga Hilmarsdóttir
Vel gert!
#23
21. ágúst 2010 klukkan 15:30
Olga
Frábært, spennan er að fara með mann.
#24
21. ágúst 2010 klukkan 15:31
Gunnsteinn
Yeeesssssssssssss!!!!!!!!!, koma svo og klára þetta.
#25
21. ágúst 2010 klukkan 15:33
Magga
Snilld, til hamingju með þetta.
Kveðjur úr Hólminum
Kveðjur úr Hólminum
#26
21. ágúst 2010 klukkan 15:34
Guðný í Knarrartungu
Til hamingju snillingarnir mínir:) Þið létuð okkur bíða en ætli biðin verði ekki að teljast þess virði :)
Geðveikt flott hjá ykkur að klára þetta með sigri :)
Takk fyrir lýsinguna Gunni minn, þú ert klárlega líka snillingur :)
Geðveikt flott hjá ykkur að klára þetta með sigri :)
Takk fyrir lýsinguna Gunni minn, þú ert klárlega líka snillingur :)
#27
21. ágúst 2010 klukkan 15:35
Guðjón í Knarrartungu
Þrjú stig góð stig í húsi gerist ekki betra, takk fyrir lýsinguna Gunni.
#28
21. ágúst 2010 klukkan 15:36
bubbi
BI -- HÖTTUR 3 -O
#29
21. ágúst 2010 klukkan 15:37
Helgi
Ég var í golfmóti og gat ekki fylgst með. Frábær sigur og til hamingju allir Víkingar, utan vallar sem innan með 1.deildarsætið. Æðislegt.
#30
21. ágúst 2010 klukkan 17:57



ÁFRAM VÍKINGUR!!!!