Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

Víkingar heimsćkja Aftureldingu í Mosfellsbć

17. ágúst 2010 klukkan 19:15

Víkingar heimsækja Aftureldingu í Mosfellsbæ á morgun í leik sem fara átti fram miðvikudaginn 28. Júlí en var frestað vegna þátttöku Víkings í bikarkeppninni. Leikurinn verður háður á Varmárvelli og hefst hann kl. 19:00. Fyrri leik liðanna í sumar lauk með 5-0 sigri Víkings þar sem öll mörkin fimm voru skoruð í fyrri hálfleik.  Edin og Heiðar Atli gerðu tvö mörk hvor í þeim leik en Þorsteinn Már Ragnarsson eitt. Yfirburðir Víkings í þeim leik voru miklir en síðan þá hafa Mosfellingar skipt um mann í brúnni þar sem Izudin Daði Dervic lét af störfum og Ólsarinn Þorsteinn Magnússon tók við.


             

Steini Þuru hefur verið að ná ágætis úrslitum með Aftureldingarliðið frá því hann tók við og því ljóst að Víkings liðinu býður erfitt verkefni fyrir höndum. Til marks um það má nefna 2-1 sigur þeirra á BÍ/Bolungarvík í síðustu umferð. Einnig ber að hafa það í huga að liðið hefur aðeins tapað einum leik á Varmárvelli það sem af er sumri og er því gífurlega erfitt að sækja þrjú stig þangað. Eina liðið sem tekist hefur að gera það er lið Hamars frá Hveragerði þar sem þeir fóru með 0-2 sigur af hólmi.

Afturelding féll úr fyrstu deild með okkar mönnum í fyrra og hefur líkt og Víkingsliðið gengið í gegnum miklar breytingar. Alls fóru 14 leikmenn frá liðinu sem höfðu spilað árið 2009 en í staðinn komu alls 18. Erfiðlega hefur gengið að púsla þessum hóp saman og þar að auki hefur brotthvarf lykilmanna haft mikil áhrif.

Allir leikmenn Víkings eru heilir að undanskildum Einari markverði sem er tæpur eftir síðasta leik og Fannar Hilmarsson sem glímir enn við meiðsli aftan í læri. Fannar ætti að geta hafið æfingar að nýju í næstu viku og Einar verður að öllum líkindum með á móti Hvöt næstkomandi Laugardag. Strákarnir geta aukið forskot sitt á toppi deildarinnar í 7 stig með sigri og því að miklu að vinna. Brynjar Kristmundsson sagði í samtali við vikingurol.is að um erfiðan leik yrði að ræða . „Mér lýst mjög vel á þennan leik, þetta verður án efa erfiður leikur því Afturelding er á góðu rönni. Við munum koma vel stemmdir til leiks og ætlum okkur sigur og skrefinu nær fyrstu deildinni."

Leikurinn á morgunn hefst kl. 19:00 og hvetur vikingurol.is stuðningsmenn Víkings nær og fjær til að fjölmenna. Dómari á morgunn er Pétur Guðmundsson og honum til aðstoðar verða Þorsteinn Sigurmundason og Davíð Kristján Hreiðarsson.

 

 

 

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?