Víkingar aftur á toppinn eftir sigur á Völsung | Umfjöllun
Ólafsvíkurvöllur skartaði sínu fegursta þegar heimamenn í Víking tóku á móti Völsungi frá Húsavík í dag. Leikurinn fór fjörlega af stað og á fyrstu tveimur mínútum leiksins hafði hvort liðið um sig átt kjörið marktækifæri. Gestirnir nýttu sér misskilning í vörn heimamanna þegar Hrannar B. Steingrímsson átti gott skot sem fór rétt yfir mark Víkings strax á fyrstu mínútu. Í kjölfarið sparkaði Einar frá markinu sínu og Tomasz Luba varnarmaður Víkings átti góða sendingu inn fyrir vörn Völsungs þar sem Edin Beslija kom á fullri ferð og var sloppinn einn gegn Steinþóri í marki Völsungs. Skot Edins var hins vegar ekki nógu hnitmiðað og fór knötturinn hárfínt framhjá.
Víkingar voru mun sterkari aðilinn í fyrrihálfleik en framanaf áttu þeir í erfiðleikum með að koma knettinum í markið en nóg var um færin. Þorsteinn Már Ragnarsson kom knettinum í netið á 18. mínútu eftir sendingu frá Sindra Má Sigurþórssyni en markið var dæmt af vegna rangstæðu. Aðeins nokkrum mínútum síðar tókst Víkingum svo að opna markareikninginn. Þar var að verki Aleksandrs Cekulajevs sem hefur verið að skora mikið upp á síðkastið fyrir Víking. Aleks fékk sendingu inn fyrir vörn Völsungs frá Eldari Masic, tók varnarmann Völsungs á og setti knöttinn í hornið nær framhjá Steinþóri í marki gestanna.
Víkingar gengu á lagið og einungis þremur mínútum síðar fengu þeir vítaspyrnu eftir að brotið var á títtnefndum Aleks. Sigurhjörtur Snorrason var ekki í nokkrum vafa og benti beint á punktinn þrátt fyrir kröftug mótmæli gestanna í Völsungi. Artjoms Goncars steig á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan orðin 2-0 eftir 25 mínútna leik og forysta heimamanna fyllilega verðskulduð.
Heimamenn voru mun líklegri til að bæta við heldur en gestirnir að minnka muninn og á 39. mínútu slapp Þorsteinn Már Ragnarsson einn inn fyrir vörn Norðan-manna og átti aðeins eftir að koma knettinum framhjá Steinþóri markverði. Þorsteinn reyndi að chippa knettinum yfir Steinþór sem lokaði markinu vel og endaði boltinn í hliðarnetinu. Eftir þetta gerðist fátt markvert og var staðan því 2-0 þegar Sigurhjörtur Snorrason flautaði til leikhlés.
Síðari hálfleikur fór fjörlega af stað líkt og sá fyrri. Víkingar pressuðu gestina hátt á vellinum og á 50. mínútu fékk Þorsteinn kjörið marktækifæri eftir frábærann undirbúning Eldars, Edins og Aleks sem höfðu sundurspilað vörn gestanna frá Húsavík. Þorsteini brást þó bogalistinn og náði ekki að stýra knettinum á markið og þar við sat.
Þegar líða tók á síðari hálfleik sóttu Völsungar í sig veðrið og voru í tvígang mjög nálægt því að minnka muninn. Fyrst Elfar Aðalsteinsson sem átti skot í hliðarnetið á marki Víkings af stuttu færi og svo Bjarki Baldvinsson sem skaut framhjá í ákjósanlegu færi. Síðustu tíu mínútur leiksins einkenndust af skyndisóknum beggja liða sem hver af annarri rann út í sandinn á síðasta fjórðungi vallarins.
Svo fór að hvorugu liðinu tókst að skora það sem eftir lifði leiks og fóru Víkingar með 2-0 sigur af hólmi sem fleytir þeim í toppsæti deildarinnar að nýju. Aðeins eitt stig skilur Víkinga frá BÍ/Bolungarvík sem er í öðru sæti en Ólafsvíkingar eiga leik til góða á móti Aftureldingu sem verður háður þann 18. ágúst

