Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

Öruggur sigur á Hetti | 3-1

03. júlí 2010 klukkan 20:11

Það var Norð-vestann næðingur þegar Víkingar tóku á móti Hetti frá Egilsstöðum í síðasta leik 9. umferðar 2. deildar á Ólafsvíkurvelli í dag. Víkingar voru fyrir leikinn í toppsæti deildarinnar en gestirnir í því þriðja og fyrirfram mátti búast við hörku leik.

Áhorfendur á vellinum í dag þurftu ekki að bíða lengi eftir fyrsta marki leiksins því Eldar Masic kom Víkingum yfir strax á 3. mínútu. Víkingar áttu hornspyrnu þar sem knötturinn datt fyrir Eldar sem átti gott skot framhjá varnarmönnum gestanna og einnig Þóri í marki Hattar. Staðan því 1-0 eftir þriggja mínútna leik.

Ekki er annað hægt að segja en að fyrrihálfleikur hafi verið bragðdaufur af hálfu beggja liða þar sem flestar sóknarlotur runnu út í sandinn á síðasta fjórðungi vallarins. Á 42. mínútu áttu gestirnir aukaspyrnu af löngu færi sem Einar Hjörleifsson í marki Víkings varði út í teiginn. Skotið frá Sigurði Donys var fast og gerði Einar vel að koma knettinum frá markinu. Í næstu sókn átti Heiðar Atli Emilsson svo gott skot sem Þórir í marki Hattar varði vel. Edin Beslija var hins vegar ekki langt frá því að ná frákastinu en Þórir var vandanum vaxinn og kom knettinum úr hættu. Staðan var því 1-0 fyrir heimamenn þegar Gunnar Jarl Jónsson flautaði til leikhlés.

Síðari hálfleikur fór rólega af stað en líkt og í þeim fyrri þá skorti bit í sóknarleik beggja liða. Það voru þó Víkingar sem bættu við marki á 57. mínútu. Þar var að verki Þorsteinn Már Ragnarsson sem fékk glæsileg sendingu af 40 metra færi frá Helga Óttarr Hafsteinssyni inn fyrir vörn gestanna. Þorsteinn kláraði færið vel og Þórir í marki Hattar kom engum vörnum við.

Á 73. mínútu bætti Edin Beslija þriðja markinu við fyrir Víkinga. Brynjar Kristmundsson átti þá sendingu inn fyrir vörn Hattar og Edin náði að koma knettinum framhjá Þóri í markinu sem var kominn langt út í teiginn. Eftirleikurinn var því auðveldur fyrir Edin sem renndi knettinum í autt markið og staðan orðin 3-0.

Gestirnir frá Egilsstöðum höfðu þó ekki sagt sitt síðasta því á 79.  mínútu  minnkaði Sigurður Donys Sigurðsson muninn. Hattar-menn fengu aukaspyrnu af 25 metra færi sem Sigurður framkvæmdi og þrumaði í netið. Spyrnan var fyrna föst og Einar í marki Víkings kom engum vörnum við. Við þetta efldust gestirnir og voru ekki langt frá því að skora annað mark á 83. mínútu. Högni Helgason var þá hársbreidd frá því að koma knettinum í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu. Boltinn datt niður fyrir framan fætur Högna sem var umkringdur varnarmönnum en skot hans fór rétt yfir.

Á loka mínútum leiksins var Helgi Óttarr Hafsteinsson ekki langt frá því að bæta við fjórða marki Víkings. Helgi átti þá gott samspil við Heiðar Atla sem endaði með skoti frá Helga og fór boltinn rétt framhjá stönginni fjær. Nokkrum mínútum síðar flautaði Gunnar Jarl Jónsson góður dómari leiksins til leiksloka. Með sigrinum komust Víkingar aftur í fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar en í öðru sæti eru sem fyrr BÍ/Bolungarvík.

                                                                                                                                               Gunnar Örn Arnarson


Meðfylgjandi myndir tók Ólafur Hlynur Illugason

































Úr leiknum í kvöld
































Úr leiknum í kvöld

Eldar kom okkar mönnum á bragðið í kvöld.

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?