Leikur Víkings og Stjörnunar í 8 liđa úrslitum bikarins í beinni á Stöđ 2 sport
02. júlí 2010 klukkan 13:56
Leikur Víkings og Stjörnunar í 8 liða úrslitum bikarsins verður sjónvarpað beint á íþróttarásinni Stöð 2 sport mánudaginn 12 júlí. Þetta staðfesti Knattspyrnusamband Íslands nú í hádeginu og því verður leikurinn háður kl. 20:00 í stað 19:15. Þetta er í fyrsta skipti sem sjónvarpað verður beint frá Ólafsvíkurvelli og því mikill heiður fyrir félagið, þá sem að liðinu standa og jú að sjálfsögðu strákana.
Það er því um að gera að stilla timer-inn á vhs-tækinu og skella sér á völlinn enda söguleg stund fyrir margra hluta sakir. Áfram Víkingur Ólafsvík!



en hinsvegar ..þeir sem ætla sér mögulega að sitja heima þetta mánudagskvöld ..tjahh ..ættu að skammast sín! Nú mæta ALLIR á völlinn!!
(og horfa svo á vhs upptökuna þegar heim er komið, mikið rétt)