0-1 sigur gegn ÍH í baráttu leik
19. júní 2010 klukkan 13:34
Víkingar gerðu góða ferð á Ásvelli í gær þar sem liðið vann 0-1 sigur gegn ÍH í miklum baráttu leik. Heimamenn voru þéttir fyrir í vörninni og vörðust aftarlega á vellinum á mörgum mönnum. Það kom þó ekki á óvart þar sem liðið hefur í undanförnum leikjum fengið á sig mörg mörk. Okkar menn voru þó þolinmóðir og reyndu hvað þeir gátu til að splundra vörn ÍH. Það tókst þó ekki fyrr en á 85. mínútu þegar Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði liðsins skoraði glæsilegt mark eftir góðan undirbúning sambýlismanns síns og nafna Brynjars Kristmundssonar. Sigurinn var afar þýðingarmikill þar sem síðustu tveir leikir enduðu með jafntefli eftir að við höfðum verið með forystu. Ejub og strákarnir voru kampakátir í leikslok en viðtal við Ejub á fotbolti.net má sjá með því að smella hér.
Víkingar komust með þessum sigri á topp deildarinnar með 14 stig en Höttur og BÍ/Bolungarvík eiga leik til góða. Hattar-menn eiga leik gegn Hamar frá Hveragerði í dag og BÍ/Bolungarvík taka á móti Aftureldingu á Bolungarvík.
Knarrartunguliđiđ
Faðir Brynjars Gauta vill að það komi fram að Brynjar Gauti á kærustu, kvenkyns :0 hahahaha
#1
19. júní 2010 klukkan 14:00
Helgi
Já, þetta er svolítið klaufalega orðað. Þeir eru herbergisfélagar í keppnisferðum, er það ekki?
#2
19. júní 2010 klukkan 16:50
Snćbjörn
nei þeir eru ÍBÚÐARBRÆÐUR, einstaklega klaufalega orðað af stjórnmálafræðing ;)
góður sigur samt meira af þessu
góður sigur samt meira af þessu
#3
19. júní 2010 klukkan 18:10
Ţeir grínast međ ţetta sjálfir og ţess vegna ákvađ ég ađ skella ţessu inn, međvitađ ađ sjálfsögđu. En ţeir eru vissulega sambýlismenn ţar sem ţeir búa saman á Engihlíđ 8. .... ef setningin mín um sambýlismennina ber vott um klaufalegt orđalag ţá ţćtti mér gaman ađ vita hvort orđiđ "íbúđarbrćđur" sé ađ finna í íslenskri orđabók :)#4
21. júní 2010 klukkan 09:49
Guđjón
Ég skildi þig alveg Gunni, enda var þessi athugasemd bara í gamni gerð. Og ég bara syng eins og Bubbi forðum, sonur minn er enginn hommi hann er fullkominn eins og ég.
#5
21. júní 2010 klukkan 14:11
hahahahahahahahahahahahahahah...
#6
22. júní 2010 klukkan 08:41
Helgi
Góður Guðjón!
#7
22. júní 2010 klukkan 11:06
Snćbjörn
íbúðarbræður verður í næstu orðabók er alveg viss um það ;)
#8
22. júní 2010 klukkan 14:41

