Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

Víkingar fá Reyni S. í heimsókn á laugardag

10. júní 2010 klukkan 22:20

                

Í 5. umferð 2. deildar karla fá Víkingar Reynismenn frá Sandgerði í heimsókn en leikurinn verður háður á Ólafsvíkurvelli nú á laugardaginn. Leikurinn hefst á slaginu 14:00 en búast má við hörkuleik tveggja skemmtilegra liða sem hafa skorað flest mörk í deildinni það sem af er. Báðum liðum er spáð velgengni í sumar og er þeim t.a.m. spáð fyrsta og öðru sæti í spá fótbolta.net. Víkingar eru enn ósigraðir og eru sem stendur í 2-3. sæti á meðan gestirnir frá Sandgerði hafa unnið tvo leiki og tapað jafn mörgum sem skilar þeim 6 stigum og 5 sæti deildarinnar. Báðir ósigrar þeirra hafa komið á útivelli, sá fyrri gegn Hvöt á Blönduósi en sá síðari gegn Hetti frá Egilsstöðum. Varnarleikur Reynismanna virðist ekki vera að smella en liðið hefur fengið á sig 9 mörk í fyrstu fjórum leikjum mótsins.

Reynismenn hafa líkt og Víkingar gengið gegnum miklar breytingar frá því í fyrra en liðið missti alls 9 leikmenn en að sama skapi fékk liðið 11 nýja til liðs við sig. Tomasz Luba sem mun spila í blárri treyju á laugardaginn mun mæta sínum gömlu félögum en hann var einn af lykilleikmönnum í liði gestanna á síðasta tímabili. Tomasz var valinn í lið ársins 2009 af fotbolta.net og því ljóst að hann skilur eftir sig stórt skarð í vörn Suðurnesjamanna. Hraður sóknarleikur hefur hins vegar verið aðal vopn gestanna og verður það því ærið verkefni okkar manna brjóta sóknarlotur gestanna á bak aftur.

Lykilmenn í liði Reynis:
Guðmundur Gísli Gunnarsson, Jóhann Magni Jóhannsson, Marteinn Guðjónsson og Sinisa Kekic.

Meiðsli
Nokkuð er um meiðsli hjá Víkingum en Fannar Hilmarsson glímir enn við meiðsli aftan í læri en hann ætti að geta hafið æfingar í næstu viku. Aleks Cekulajevs er einnig á sjúkralistanum en hann hefur ekki getað æft í vikunni vegna nárameiðsla. Einar markvörður glímir einnig við smávægileg meiðsli í baki en verður þó að öllum líkindum leikfær þegar flautað verður til leiks á laugardag. 

Dómarar
Dómari: Pétur Guðmundsson | Landsdómari B (Breiðablik)
Aðstoðardómari 1: Egill Örn Þórarinsson
Aðstoðardómari 2: Egill G. Guðlaugsson
Eftirlitsmaður KSÍ: Eiríkur Helgason

 

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?