Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

Völsungur - Víkingur Ó. | Bein lýsing (2-2) Leik lokiđ

05. júní 2010 klukkan 12:40

Dómari leiksins er búinn að flauta leikinn af! Okkar menn sóttu linnulaust seinustu mínútur leiksins. Það dugði hins vegar ekki til en við tökum stiginu feigins hendi en vissulega grátlegt að missa forystuna eftir að við höfðum unnið hana til baka af harðfylgi! Maður leiksins Þorsteinn Már Ragnarsson, það liggur enginn vafi á því. Gunnar Örn þakkar fyrir sig og biður að heilsa heim!.

90+2: horn en skalli fyrir markið!!! Þorsteinn var með glæsilegann undirbúning en ekkert varð úr... 93 mínútur liðnar

90. mín: Hver sóknin á fætur annarri frá okkar mönnum!!! Við náum bara ekki að reka endahnútinn!

86. mín: Annað horn sem okkar menn fá..... ekkert verður úr.. skot hjá Aleks og annað horn.. er það allt er þegar þrennt er??? ..... markvörður Völsungs slær boltann yfir slánna! Annað horn.....völsunar skallar frá og fær innkast!

84. mín: Þorsteinn í þröngu færi og næri skoti en krafturinn var ekki næginlega mikill og markvörðurinn varði auðveldlega. Við eigum horn núna!!! Hægra megin!!!.....

80 mínútur liðnar og lítið er í spilunum... sendingarnar sem hafa farið úrskeiðis eru orðnar ansi margar.

75 mínútur liðnar og það er lítið í gangi núna. Bæði lið reyna að sækja en færin láta á sér standa. Hálf grátlegt en við verðum bara að herða okkur og halda áfram.

70. mín: Heimamenn voru að jafna metin!!! 2-2. Kom líkt og fyrra markið þeirra í raun ekki upp úr neinu. Bolti inn í teiginn og þeir fengu að valsa einir með boltann þangað til það kom skot af stuttu færi sem var illviðráðanlegt fyrir Einar í markinu!!

68. mín: Heimamenn eiga nú hornspyrnu frá hægri. Einar grípur máttlausann skalla heimamanna og við brunum upp. .... ææææjjji!!! Edin með vonlaust skot og hefði betur reynt að notfæra sér Þorstein sem var uppi með honum!!!!Aleks kemur núna inn á fyrir Heiðar Atla sem mér fannst vera búinn að vera nokkuð frískur. En hvað um það! 1-2 fyrir Víking og 69 mínútur liðnar. !

65. mín: Heimamenn í ákjósanlegu færi en skot leiksmanns nr. sjö fer rétt framhjá. !

61. mín:Einstaklega vel að verki staðið hjá Gipsí eins og ég kýs að kalla hann núna sneri á varnarmann í teignum og sendi knöttinn á milli fótanna á markverði Völsungs og okkar menn eru komnir með forystuna!!!!

Það er búið að vera allt annað tempó..... 1-2!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!ÞORSTEINN AÐ BÆTA ÖÐRU MARKI VIÐ!!!!

58. mín: Heiðar Atli í góðu færi ... horn og VÍKINGAR ERU BÚNIR AÐ JAFNA!!! ÞORSTEINN MÁR RAGNARSSON hirðir frákast og þrumar boltanum í netið. Steindór Auðunsson í marki heimamanna náði ekki að halda boltanum, missti hann og Þorsteinn þrumaði boltanum í markið! 1-1

56. mín: Skyndisókn sem endar með fyrirgjöf frá Þorsteini, skalli frá Eldar sem markvörður Völsungs ver auðveldlega. Heiðar sækir nú upp vinstra megin og Sindri með skot sem fer yfir.

52 mín: Aukaspyrna fyrir okkur á stórhættulegum stað. BK og Artjom standa yfir boltanum... Brynjar K. setur knöttinn yfir markið. Var ekki nógu hnitmiðað en færið var mjög gott.

49. mín: Dauðafæfæri hjá hjá Heiðari en markvörðurinn ver í horn.... og vitið menn! Ejub sem var búinn að fá áminningu í fyrrihálfleik fékk sína aðra áminningu á leið til búningsherbergja og þar með sendur út af. Hann horfir nú á leikinn utan vallarmarka. Heiðar Atli með skot sem fer rétt framhjá!!!

Já Bubbi, þú lest vel á milli línanna en svo virðist sem þessir leikir hafi haft eitthvað að segja en nú er bara að girða sig og harka af sér!!!

Leikmenn ganga nú inn á völlinn að nýju. Víkingar sækja núna frá sundlauginni og að húsinu sem ég sit í. Vindurinn er skáhalt yfir völllinn og því ekki hægt að segja að um sé að ræða vind í bakið. Bjarni dómari flautar laeikinn á að nýju.

Bjarni Hrannar Héðinsson hefur flautað til loka fyrri hálfleiks þar sem heimamenn í Völsung eru yfir 1-0. Kem með síðari hálfleik að vörmu spori!

45. mín: Víkingar í skyndisókn, Eldar tekur ótímabært skot, þar sem hann var með fullt af sóknarmönnum með sér, hefði getað nýtt þetta mun betur. Horn sem við eigum....ekkert verður úr, var reyndar innkast.

44. mín. Brynjar G. með skot sem markvörður heimamanna ver og missir en nær samt aftur.

Finnst við vera detta í allt of langa bolta. Auðvelt fyrir heimamenn að verjast því. En Ejub á líklega eftir að laga það í hálfleik, en það styttist í að það verði flautað til hálfleiks.

39. mín. Við eigum núna aukaspyurnu á miðjum vallarhelming Völsungs. BK stillir boltanum upp....boltinn endar hjá Heiðari Atla sem á baneitraða fyrirgjöf eða skot og boltinn rétt framhjá stöng eða slá.

Lítið í gangi þessa stundina en það eru rúmlega 30 mínútur eru liðnar af fyrri hálfleik. Við spilum nú aftast löng sending yfir á Heiðar sem sendir á Edin sem missir boltann. Við erum búnir að vinna knöttinn aftur en spilið virðist vera færast í aukana. Þorsteinn með sendingu inn á teig sem endar í höndunum á markverði heimamanna.

26. mín: Aukaspyrna frá vinstri á miðjum vallarhelming Völsungs, BK gefur fyrir..... Bjargað á línu og horn sem við eigum frá vinstri. .... Heiðar Atli stillir boltanum upp....! Annað horn, Heiðar aftur...spyrnan of innarlega og endar í hliðarnetinu á markinu. Staðan enn 1-0 fyrir heimamenn.

24. mín: Okkar með með aukaspyrnu á ákjósanlegum stað. BK stendur við boltann , gefur fyrir en heimamenn hreinsa í innkast.

Völsungur ef eitthvað er Helgi, samt erfitt að segja, þetta er nánast að koma upp úr engu hjá þeim grænu. Lítið í gangi en færin poppa einhvernveginn bara upp.

21. mín: Skot hjá heimamönnum sem var alls ekki svo vitlaust. Fór ekki langt yfir en Einar var í boltanum.

19. mín: Einar er að halda okkur á floti þessa stundina. Hættuleg fyrirgjöf heimamanna endaði með skalla sem Einar varði mjög vel! Önnur hornspyrna sem Völsungur fær eftir misheppnaða hreinsun frá Brynjari K. Artjom hreinsar frá.

17. mín: Einar að verja virkilega vel. Líkt og að okkar menn séu ekki alveg byrjarðir. Aftur klikkaði dekkning í horninu en skalli heimamanna fer framhjá.  

10. mín: Völsungur í góðu færi en skot þeirra fer yfir. Einar spyrnir nú frá markinu.

Nú er að sjá hvernig okkar menn bregðast við mótlætinu en liðið hefur aldrei lent undir það sem af er
tímabilinu. Ég er ekki í vafa um að þeir geri það. Við eigum nú horn frá hægri.! Víkingar í dauðafæri en heimamenn ná að komast fyrir 2 skot í röð.

6. mín: Edin aftur í færi en í þetta sinn rennir hann boltanum út og enginn sóknarmaður Víkinga var nálægt og varnarmenn Völsungs hreinsa.

5. mín: Edin næstum búinn að svara fyrir okkar menn í næstu sókn en skot hans framhjá.

4. mín: Heimamenn sem skot að marki sem fer í varnarmann og nú eiga þeir grænu horn. Völsungur var að komast yfir. Víkingar voru hreint út sagt steinsofandi í teignum og Jón Hafsteinn Jóhannsson var einn á auðum sjó og stangaði knöttinn í netið. 1-0 fyrir heimamenn.

Hvernig er það, eru einhverjir að fylgjast með í dag eða?

1. mín: Leikurinn er hafinn. Það eru okkar menn sem byrja með boltann!

Liðin eru nú komin á völlinn. Víkingarnir ganga á línuna og heilsa heimamönnum. Nú styttist í að dómari leiksins flauti leikinn af stað. Gauti stendur nú á miðjunni og ræðir við dómara og svo fyrirliða Völsungs.

Komið öll margblessuð og sæl.

Það er Gunnar Örn Arnarson sem heilsar ykkur hér á þessum líka ágæta laugardegi en hér á Húsavík fer senn að hefjast viðureign Völsungs við okkar menn í Víking Ólafsvík. Það er ljóst að hér verður um hörkuleik að ræða þar sem heimamenn eiga harm að hefna síðan úr úrslitum lengjubikarsins í vor. Eins og alþjóð veit þá fóru Víkingar með sigur af hólmi og hömpuðu bikarinum góða sem nú stendur í glerhillu í Ólafsvík.

Byrjunarliðið í dag er þannig skipað:
                                                                                        Einar Hjörleifs
                                                            
                                                           Brynjar Kristmunds   Tomasz   Artjom   Sindri Már
                  
                                                                 Helgi Óttarr   Eldar   Gauti   Heiðar Atli

                                                                                      Edin & Þorsteinn

 
Helgi
Ég er mættur.
#1
05. júní 2010 klukkan 12:46
 
Fannar Hilmars
Er mættur, koma svo!!!
#2
05. júní 2010 klukkan 12:48
 
ka mađur
kallinn er mættur hér .
#3
05. júní 2010 klukkan 12:49
 
Olga
Er mætt, ÁFRAM VÍKINGUR......
#4
05. júní 2010 klukkan 12:50
 
bubbi
Sá svartsýni mættur
#5
05. júní 2010 klukkan 12:53
 
Bóbó
Pabbi Sindra, koma svo Víkingur.
#6
05. júní 2010 klukkan 12:54
 
ka mađur
skora avo vikingur ó
#7
05. júní 2010 klukkan 13:01
 
Helgi
Gunni, hvort liðið er með undirtökin?
#8
05. júní 2010 klukkan 13:04
 
Helgi
Það dregur úr heimamönnum smámsaman, sanniði til.
#9
05. júní 2010 klukkan 13:10
Liðið hefur ekki tapað leik þarna í meira en ár. Það mun ekki breytast í dag.
#10
05. júní 2010 klukkan 13:19
 
Sigrún Reynisdóttir
Ég fylgist með. Áfram Víkingur !!!!
#11
05. júní 2010 klukkan 13:26
 
Knarrartungubúiđ
Við erum mætt. Þetta kemur.
#12
05. júní 2010 klukkan 13:30
 
bubbi
heya Gunnar mér virðist ekki vera sami kraftur í liðinu eins og á máti Aftureldingu 3 leikir á 1 viku fyrir ekki stærri hóp of stór biti?? É held nú samt að við vinnum seinni hálfleikin 2 0
#13
05. júní 2010 klukkan 13:43
 
Helga Hilmars
Ég fylgist með! Og bíð eftir Víkingsmarki.
#14
05. júní 2010 klukkan 13:58
 
Helga Hilmars
Haha, þurfti ekki að bíða lengi. Vel gert!
#15
05. júní 2010 klukkan 13:59
 
Helgi
Eftir lýsingunni að dæma sýnist mér Völsungar farnir að gefa eftir. Þeir hafa ekki átt færi síðan snemma í leiknum skv. lýsingunni. Nú er bara að jafna þetta fjótlega og freista þess síðan að klára leikinn með sigri.
#16
05. júní 2010 klukkan 13:59
 
Helgi
Frábært. Við skorum alltaf mikið af mörkum þannig að ég var alveg pollrólegur og vissi að við myndum gera mark/mörk. Nú eru þau orðin tvö. Meðaltalið hjá okkur er 3,5 mörk í leik og þannig að við getum alveg eins reiknað með einu til tveimur mörkum til viðbótar, ekki satt.
#17
05. júní 2010 klukkan 14:08
 
Helgi
Gott stig á erfiðum útivelli. Takk fyrir lýsinguna Gunni.
#18
05. júní 2010 klukkan 14:36

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?