Víkingar eru mćttir á Húsavík
Gunnar Örn Arnarson skrifar frá Húsavíkd
Víkingar eru mættir Norður á Húsavík eftir langt og strangt ferðalag. Sem stendur sitjum við í borðstofunni á gistiheimlinum sem við munum dvelja á í nótt. Hér fer vel um okkur og aðstaðan er eins og best verður á kosið. Við erum í húsi sem er ný upptekið en síðasti naglinn var negldur við komu okkar og Ajax-ilmurinn bauð okkur velkomna um leið og við stigum inn fyrir þröskuldinn. Strákarnir fóru á æfingu hálftíma eftir komu eða 20:15 að staðartíma. Jónas fór með Þorstein á spítala þar sem gert var að gifsinu hans á og Alli Netargerðameistari ásamt undirrituðum fóru í að elda mat ofan í liðið. Á boðstólnum voru grillaðar kjúklingabringur.
Uppskrift:
- Kjúklingabringur 36 stk skipt í tvennt.
- Marinering
- o Sojasósa,púðursykur,sætt simmep, salt, pipar, hvítlaukur og engifer
- Brauð, gróft og fínt
- Pasta í grænu og rauðu pestó
- Hvítlauks- og piparsósa.
Strákarnir tóku vel til matar og allt kláraðist. Til að græta engan þá er víst best að taka það fram að Jónas sá um að hita brauðið og el-pasta-delapestó sérfræðingurinn í hópnum Ejub sá um að matreiða pastað. Að mati loknum fengu strákarnir að spóka sig um í bænum en að sjálfsögðu var útivistatíminn takmarkaður og þegar hér er komið við sögu eru allir búnir að skila sér í hús (23:21). Nú eru húsráðendur að bjóða okkar mönnum lýsi fyrir svefninn. Það er vel að okkur látið hér fyrir Norðan og veðurblíðan er hreint út sagt fáránlega góð.
Það er létt í mannskapnum og er útlit fyrir að allir sem hingað eru mættir verði leikfærir á morgun. Artjoms er ennþá pínulítið spurningarmerki en við skulum sjá til á morgun hvort Portúgalinn fljúgandi Dr. Antonio Grave geti ekki tjaslað hann til. Aljaz Horvat kom í dag frá Slóveníu og kom það í hlut Helga Bjargar að pikka kallinn upp á Keflavíkurflugvöll og kunnum við honum bestu þakkir fyrir það. Hann flaug svo til Akureyrar þar sem við tókum hann áður en við lögðum af stað frá Akureyri. En hér fer að koma svefntími á leikmenn(skilst þó að ég og Alli fáum aðeins lengri útivistartíma:) og ætla ég að láta þetta nægja í bili. www.vikingurol.bloggar.is verður að sjálfsögðu með beina textalýsingu á morgun en eftir að hafa séð aðstöðuna hérna á vellinum þá finnst mér mjög líklegt að ég geti verið með lýsingu. Þarf einungis að komast í rafmagn og þá erum við good to go!
Sérstakar þakkir í dag fá:
Hilmar Hauks fyrir að hafa verslað í matinn.
Helgi Bjargar fyrir að hafa skutlað Aljaz í bæinn.
Alli, fyrir að hafa farið á kostum á grillinu og Jónas fyrir að hafa keypt betra pestó en síðast.
Lifið heil og áfram Víkingur!
Smellið hér til að sjá allar myndirnar

