Víkingar í efsta sćti deildarinnar eftir 5-0 sigur á Aftureldingu.
Víkingar sigruðu Aftureldingu í dag með 5 mörkum gegn engu í 3. umferð 2. deildar í knattspyrnu. Mörk leiksins komu öll í fyrri hálfleik en Víkingar höfðu skorað tvisvar á fyrstu fjórum mínútunum. Fyrsta markið skoraði Edin Beslija eftir að hafa fylgt eftir skoti Brynjars Gauta Guðjónssonar og staðan 1-0. Á fjórðu mínútu bætti Heiðar Atli Emilsson við marki eftir glæsilegann undirbúning Þorsteins Más Ragnarssonar sem kom boltanum inn í teyginn af harðfylgi og því eftirleikurinn hjá Heiðari Atla auðveldur.
Á 37. mínútu skoraði Edin Beslija sitt annað mark eftir undirbúning Eldar Masic sem skallaði knöttinn inn fyrir vörn gestanna og Edin þrumaði boltanum í hornið fjær. 4 mínútum síðar bætti Þorsteinn Már fjórða markinu við. Helgi Óttarr Hafsteinsson átti þá skot að marki sem úr varð ágætis sending. Þorsteinn tók boltann niður og setti hann snyrtilega í hornið fram hjá Skarphéðni í marki Aftureldingar.
Víkingar höfðu ekki sagt sitt síðasta í fyrri hálfleik því Heiðar Atli Emilsson bætti við fimmta markinu áður en Valgeir Valgeirsson flautaði til loka fyrri hálfleiks. Eldar Masic tók þá hornspyrnu sem Tomasz Luba lagði út í teiginn og Heiðar nelgdi knettinum í netið út við stöng og Skarphéðinn í markinu kom engum vörnum við.
Seinni hálfleikur var rólegur og Afturelding kom sterkari til leiks eftir afleiddann fyrri hálfleik. Hvortugt lið skapaði sér þó hættulegt færi en gestirnir komust þó næst því að skora þegar Arnór Þrastarson vippaði boltanum í slánna á marki Víkings. Þar við sat og Víkingar fóru með öruggan sigur af hólmi í Ólafsvík.

