KS/Leiftur - Víkingur Ó. | Bein lýsing (1-3)
- Gunnar Örn skrifar frá Ólafsfirði
Gunnar Örn þakkar þeim sem fylgdust með hér á www.vikingurol.tk en nú tekur við löng ferð vestur í sæluna. Bestu kveðjur frá Ólafsfirði!
91. mín: Helgi Óttarr-legi að fá gult spjald, snyrtilegt brot en Hörður Már Magnússon geystist fram og því ágætis brot ef svo má kalla. Aukaspyrnasem okkar menn hreinsa frá. Í þeim töluðu orðum flautar dómarinn til leiksloka. Leiknum lokið með 1-3 sigri Víkings frá Ólafsvík. 6 stig komin í hús.
89. mín: Þorsteinn tekinn niður rétt fyrir utan vítateig. Pottþétt gult spjald en Þorsteinn var rétt við það að komast í gegn. Masic setur boltann í hornið fjær og markvörður KSL ver stórglæsilega!!! Horn en engin hætta á ferð.
85. mín: Heimamenn eiga nú horn og brotið á þeim rétt fyrir utan vítateig. Einar stillir upp vegg! 6 manna varnarveggur, mikill meðvindur.... spyrnan er yfir! Staðan ennþá 1-3 þegar Einar sparkar frá markinu. Andri Freyr Hafsteinsson að koma inn á fyrir Aleks. Aleks búinn að hlaupa mikið og væntanlega orðið lúinn. Andri kemur inn á vinstri kannt og Edin fer fram.
80. mín: Þorsteinn Már Ragnarsson að bæta við þriðja markinu. Viiiiiirkilega flott mark. Slapp einn í gegn og chippaði boltanum yfir markvörð KSL rétt fyrir utan vítapunktinn! Viiiirkilega ekki rétta orðið.. þetta var fáránlega nett mark! 1-3 og það má með sanni segja að það hafi borgað sig að fljúga Þorsteini norður í morgunn:)
Ef til vill bara sanngjarnt því ég gat ekki betur séð en að þetta hafi einfaldlega ekki verið víti en hvað um það. Leikurinn heldur áfram og Einar býr sig nú undir að sparka knettinum.... MARKKKKKKKKK!!!!!!! 1-3!!!!
76. mín: Markvörður KSL ver vítið frá Brynjari Kristmunds.
75. mín: Edin með boltann.... Víkingar fá víti!!!
71. mín: Ragnar Hauksson minnkar muninn fyrir heimamenn úr vítaspyrnu. Ragnar sendi Einar í rangt horn. 1-2 og tuttugu mínútur til leiksloka. Það var í raun ekkert í gangi hjá KSL þegar þetta gerðist. Ólán fyrir Bega að fá knöttinn í sig en svona er boltinn. Áfram svo strákar.
Gaman að þú skulir minnast á meiðsli Helgi. Við fórum af stað í gær með 15 leikmenn og þar af 3 virkilega ... Heimamenn eru að fá víti! Sýndist Bega fá hann í höndina á sér.
69. mín: Skot að marki okkar manna en boltinn framhjá. Einar tekur nú útspark. Miðjumoð og ekki mikið að gerast. Tvöföld skipting hjá heimamönnum. Einar tekur útspark en boltinn beint útaf.
65. mín: Einar sparkar nú frá markinu. Það er lítið í gangi í leiknum. KSL meira með boltann þessa stundina en okkar menn verjast vel . KSL spilar með sterkum vindi. Eldar með skot sem fer yfir markið. Það verður seint sagt að KSL spili ekki fastann fótbolta en okkar menn virðast vera höndla það ágætlega.
61. mín: Sindri Sig að koma útaf og Helgi Óttarr inn.
13. mín: BK tekur aukaspyrnu á okkar helming en ekkert verður úr.
Þorsteinn Már Ragnarson að skora glæsilegt mark. Prjónaði sig í gegnum vörnina og setti boltan framhjá markverði heimamanna og staðan 0-2!!!
9. mín. Mark!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! 0-2!!!!
8. mín: Víkingar sækja núna. Artjom tekur aukaspyrnu inn á okkar vallarhelming eftir að brotið var á Bega. Gamli er búinn að standa sig með mikilli prýði. Dómarinn gefur Ejub smá tiltal("hver hefði tippað á að það gæti gerst")
Þorsteinn er leikfær (vitna í kommentið hans Bubba). Spilar með svarta lopahanska yfir plastið sem er vafið um höndina á honum. Ég, HIlmar og Alli vorum í stökustu vandræðum að koma honum í hanskann á meiddu höndinni. En það hafðist fyrir rest. Einar út úr markinu og handsamar knöttinn! Vel gert hjá Einsa. 3 mínútur liðnar af leiknum.
45. mín: Leikurinn er hafinn að nýju.

Myndir úr fyrri hálfleik, atgangur í teignum eftir föst leikatriði. KSL eru sterkir í loftinu en okkar mönnum hefur gengið vel að halda því í skefjum. Hægt er að stækka myndirnar með því að smella á þær.
45. mín: Sókn sem rennur út í sandinn hjá okkar mönnum, langt útspark og dómarinn flautar til leikhlés. 0-1 í hálfleik fyrir Víking Ólafsvík. Okkar menn hafa spilað vel og við getum verið ánægðir með gang mála. Tók nokkarar myndir sem
39. mín: Talsverð pressa á okkar mönnum síðastliðnar mínútur eftir föst leikatriði, Einar og varnarmenn okkar eru búnir að vera vel á verði og eru sterkir í loftinu. Masics átti núna skot sem markvörður KSL varði mjög vel og horn. Ekkert varð úr horninu og leikurinn heldur áfram. Horn sem KSL á.... Þorsteinn hreinsar á Aleks sem missir boltann á vallarhelming KSL.
35. mín: Þorsteinn með skot sem fer í varnarmann og framhjá. Hornspyrna sem Aleks tekur en boltinn allt of langur og yfir hinum megin.
34. mín: Sindri Sig með skot að marki en skotið laust og framhjá.
32. mín: Þorsteinn með skot að marki en markvörður KSL ver auðveldlega. Ljótt brot á gamla manninum okkar honum Bega og Doddi Birgis fær fyllilega verðskuldað spjald að launum. Þetta var ljótt brot!
31. mín: Aleks í dauðafæri en er allt of lengi að klára færið, var búinn að gera allt rétt en var allt of lengi að munda skotið og varnarmaður komst fyrir og ekkert varð úr.
28. mín: Þorsteinn við það að prjóna sig í gegn en boltinn aftur fyrir og markspyrna frá marki KSL. Þeir eiga nú aukaspyrnu á miðjum vellinum. Langur bolti inn en við hreinsum frá og brunum í skyndisókn. Ekkert verður úr.
Glæsileg fyrirgjöf frá Artjom af vinstri kanti, Aleks að mér sýndist kom á ferðinni og stangaði knöttinn í markið, glæsilegt mark hjá stráknum. 0-1 staðreynd hér á Ólafsfjarðarvelli.
23. mín: MARK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Víkingar að komast yfir!!! 0-1!!
22. mín: Einar grípur vel inn í en Bega liggur eftir, Doddi Birgis sýndist mér hafa látið finna fyrir sér. Ekki áferðafalleg knattspyrna sem verið er að sýna og færin láta á sér standa. En áfram heldur leikurinn.
22. mín: BK tekur aukaspyrnu við varamannaskýlin inn á teig en dómarinn sá eitthvað athugavert í teignum og dæmir aukaspyrnu.
18. mín: Þorsteinn vinnur aukaspyrnu á miðjum vellinum. Artjom með sendingu inn á teig en KSL vinna boltann. Hjá mér situr Fannar Hilmarsson sem jafnframt er skráður sem varamaður en er ekki gallanum vegna meiðsla aftan í læri.
16. mín: Heimamenn sækja en Víkingar snúa vörn í sókna en of löng sending fram sem markvörður KSL kemur út í og handsamar boltann. Gauti með sendingu inn á Edin sem nær ekki boltanum sem fer aftur fyrir endamörk. Markspyrna frá marki heimamanna.
13. mín: Hornspyrna sem heimamenn eiga, skot að marki sem hefur viðkomu í varnarmann, önnur hornspyrna. Brynjar Gauti skallar frá í seinni bylgjunni og við fáum innkast á okkar vallarhelming.
11. mín: Eldar að fá loka viðvörun frá Dómaranum. En Aleks eltir boltann fram völlinn en varnarmenn KSL gera vel og engin hætta á ferð.
7. mín: Edin næstum búin að komast inn í glórulausa sendingu heimamanna sem var ætluð markverðinum. Heimamenn ruku í sókn en Einar nær að handsama knöttinn og Víkingar leggja af stað í sókn.
4. mín: Okkar menn eiga núna fyrstu hornspyrnu leiksins. BK hleypur að boltanum.... það er bjargað á línu. Þarna vorum við næstum komnir yfir. Þriðja hornspyrnan í röð að koma!! Brynjar Kristmunds hleypur aftur að boltanum og enn er nauðvörn hjá heimamönnum. Skyndisókn hjá heimamönnum en Víkingar bægja hættunni frá.
Heimamenn spila í Bláum búningum en okkar menn eru í gulum. Ég er dálítið langt frá vellinum og næ því kannski ekki að´lýsa þessu í smáatriðum. Þorsteinn var nálægt því að komast í gegn en varnarmenn KSL koma boltanum frá.
Velkomin að skjánum Guðný, eru einhverjir fleiri að fylgjast með?
1. mín: Leikurinn er hafinn!
Leikmenn gera sig nú klára að koma inn á völlinn. Ég heyrði vel í okkar mönnum þegar þeir tóku berjuna og ég finn það á mér að þeir muni mæta ákveðnir til leiks.

Svona er sjónarhornið þar sem ég er staddur í vallarhúsinu á Ólafsfirði. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana stærri.
Við erum mættir á völlinn gott fólk.
Byrjunarlið Víkings í dag er þannig skipað. Einar stendur í markinu. Í fjögurra manna varnarlínu eru þeir Brynjar K (hægri bak), Suad Begic, Tomasz og Artjom (vinstri bak). Fyrir framan þá er Gauti aftarlega á miðjunni. Á köntunum eru Sindri Sig (hægri) og Þorsteinn(vinstri). Á miðjuni eru Eldar og Edin en frammi er Aleks.
En hvernig er það, eru einhverjir áhorfendur í dag?
(Færsla 1)
Gunnar Örn Arnarson skrifar frá herbergi nr. 2
Víkingar óku í dag áleiðis til Ólafsfjarðar þar sem liðið leikur á móti sameiginlegu liði KS/Leifturs í 2. umferð 2. deildar karla í knattspyrnu. Liðið er sem stendur á Hofsósi þar sem það mun dvelja í nótt en haldið verður af stað til Ólafsfjarðar kl. 11:30 í fyrramálið.
Komið var á Hofsós um hálf níu leytið í kvöld þar sem liðið tók létta æfingu á knattspyrnuvellinum á Hofsósi. Á meðan liðið æfði sáu fylgdarliðar (Alli Netó, Hilmar Hauks og Gpopps) um að elda fyrir mannskapinn. Á boðstólnum voru grillaðar kjúklingabringur með barbíkjú-sósu (ala Alli) og pasta í pestósósu. Að sjálfsögðu fengu drengirnir brauð með og var krásunum sullað niður með ísköldu Mountain Dewi í boði Dodda á Shell. Strákarnir tóku vel til matar og voru afar sáttir með kokkana enda fagmenn fram í fingurgóma þar á ferð.
Það fellur í verk undirritaðs að koma peyjunum á fætur í fyrramálið en morgunmatur verður kl. 10:30 í félagsheimili bæjarins. Það verður því ræs and sjæn kl. 09:30 svo allir verði nú vel vakandi þegar leikurinn verður flautaður á kl. 14:00. Vikingurol.tk mun að sjálfsögðu fylgjast grannt með gangi mála og vera með beina lýsingu frá leiknum.
Hér á Hofsósi eru aðeins 15 leikmenn mættir en Þorsteinn sem á við meiðsli að stríða í hönd kemur með flugi til Akureyrar í fyrramálið. Kristmundur Sumarliða brunaði með hann í bæinn í kvöld því í dag var talið að Þorsteinn yrði ekki leikfær og af þeim sökum ekki tekinn meðAnnað kom á daginn en Hilmar Hauks mun fara á fætur fyrstur manna og leggja af stað kl. 08:00 til Akureyrar.Þorsteinn lendir um tíu leytið og munu þeir hitta liðið á Ólafsfirði. Þess ber að geta að Gutti Gríms fór á móti Munda og ferjaði sveitadrenginn frá Kverná síðustu metrana í borgina og kunnu við honum bestu þakkir fyrir.
Hópurinn er þannig skipaður: Einar, Jón Haukur, Tomasz, Artjom, Brynjar K, Brynjar G., Bega, Eldar, Edin, Aleks, Alfreð Hjaltalín, Sindri S., Helgi Óttarr, Andri Freyr, Fannar Hilmars og Þorsteinn.
Byrjunarliðið verður tilkynnt eins fljótt og auðið er en við ættum að vera mættir á Ólafsfjörð um kl. hálf eitt á morgun og þá má búast við nánari tíðindum er varða leikinn.
Núna heyri ég að Einar (herbergisfélagi minn í annað skiptið í þessari viku) er farinn að hrjóta og því tími til að leggja tölvuna frá sér og segja góða nótt. Þangað til á morgun......
Áfram Víkingur
Koma svoooo !!


ÁFRAM VÍKINGUR!!!