Sigur í öskuslag í Vestmannaeyjum | Visa-bikarinn
Víkingar heimsóttu KFS í sannkölluðum öskuslag í Vestmannaeyjum í gær. Flautað var til leiks kl. 19:00 og höfðu okkar menn í Víking ferðast frá því klukkan átta um morguninn. Fyrst var haldið til Þorlákshafnar þar sem Herjólfur sigldi með leikmenn og fylgdarlið yfir á Heimaey. Vel var tekið á móti okkur á Café Kró þar sem liðið fékk að snæða bæði súpu og brauð.
Eftir matinn fór liðið inn á gistiheimilið Heimir þar sem móttökurnar voru ekki síðri. Eftir stuttann fund með þjálfaranum var svo haldið af stað með rútu í búningsaðstöðuna í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja og þaðan á völlinn.
Byrjunarlið Víkigns:
Einar
Brynjar K Tomasz Artjom Sindri S.
Fannar Brynjar G. Helgi Ó. Heiðar
Þorsteinn
Aleksandrs
Varamannabekkur Víkings:
Jón Haukur, Edin(70), Eldar(75), Andri(80) og Bega.
Leikurinn fór fjörlega af stað þar sem Víkingar léku undan sterkum vindi. Víkingar höfðu nær sótt án afláts þegar Sæþór Jóhannesson kom heimamönnum yfir á 10. mínútu. Um var að ræða fyrstu sókn KFS en það verður hins vegar ekki tekið af þeim að hún var vel útfærð og Sæþór kláraði færið af glæsibrag.
Adam var þó ekki lengi í paradís því Aleksandrs jafnaði metin fyrir Víking aðeins 4 mínútum síðar eftir misheppnað útspark hjá markverði heimamanna. Aleks fékk þá boltann á miðjum vallarhelming KFS og smellti boltanum framhjá markverðinum sem var kominn langt út úr markinu. 
Á 26. mínútu leiksins kom Þorsteinn Már Ragnarsson okkar mönnum yfir með glæsilegu marki. Þorsteinn fékk þá sendingu og var staðsettur rétt fyrir utan teig gestanna, hrissti af sér varnarmann og smellti boltanum í hornið fjær. Glæsilega gert og Víkingar komnir yfir. Átta mínútum síðar bætti Heiðar Emilsson sem nýverið kom að láni frá Stjörnunni við marki. Heiðar fékk þá sendingu frá Þorsteini sem var kominn í ágætis færi en lagði boltann á Heiðar sem kom boltanum yfir línuna og framhjá markverði KFS.
Víkingarnir komu svo ákveðnir til leiks í síðari hálfleiks og strax á 47. mínútu kom Helgi Óttarr Hafsteinsson okkur í 4-1. Helgi fékk þá boltann fyrir utan teig og nelgdi knettinum viðstöðulaust í netið. Á 63. mínútu minnkuðu heimamenn muninn með marki sem kom langt utan að velli. Þar var að verki Ingólfur Einisson sem hitti boltann afarvel auk þess sem vindurinn jók hraðann á skotinu. Einar náði ekki nægilega góðri fótfestu sem varð til þess að hann rann í skutlunni og boltinn endaði í bláhorninu.
Það var svo Edin Beslija sem innsiglaði sigurinn á 88. mínútu. Markvörður KFS hafði þá varið vel frá Brynjari Gauta, Heiðar náði frákastinu, renndi boltanum á Edin sem setti boltann pollrólegur í autt markið.
Glæsilegur sigur Víkinga í annars erfiðum leik þar sem heimamenn í KFS voru fastir fyrir og ákveðnir í að láta okkar menn hafa fyrir hlutunum. Dregið verður í 3. umferð Visa-bikarins á föstudag og gaman verður að sjá hvaða andstæðinga við fáum enda liðin í Pepsi-deildinni í pottinum.
Myndir og myndbönd frá ferðinni koma inn á síðuna síðar.
Vísabikarkeppnin:
KFS úr leik
- Töpuðu fyrir Víking frá Ólafsvík 2:5 í kvöld
KFS úr leik Ingólfur Einisson skoraði af tæplega 60 metra færi gegn Víking frá Ólafsvík í kvöld.
KFS féll í kvöld úr leik í Vísabikarkeppninni eftir 2:5 tap gegn 2. deildarliði Víkings frá Ólfsvík. Leikurinn fór fram við afar erfiðar aðstæður, strekkingsvindur stóð á annað markið og gekk á með skúrum. Framan af var leikurinn þó í jafnvægi, gestirnir frá Ólafsvík léku undan vindinum í fyrri hálfleik og það hefur því komið eins og köld vatnsgusa hjá þeim þegar Sæþór Jóhannesson kom KFS yfir á 14 mínútu.
En Adam var ekki lengi í Paradís. Og reyndar ekki Eva heldur. Ólafsvíkingar jöfnuðu metin aðeins fjórum mínútum síðar eftir misheppnað útspark Kolbeins Arnarsonar. Boltinn datt beint fyrir fætur sóknarmanns Víkings sem lagði boltann snyrtilega í netið af 30 metra færi. Gestirnir höfðu svo heppnina með sér undir lok fyrri hálfleiks. Fyrst skoruðu þeir stöngin, stöngin inn og svo var Bjarna Rúnari Einarssyni vikið af velli á 43. mínútu. Bjarni Rúnar braut tvisvar af sér í leiknum og uppskar tvö gul spjöld og þar með rautt. Afar strangur dómur.
Það var ekki langt liðið af síðari hálfleik þegar gestirnir bættu við fjórða markinu og ljóst að eftirleikurinn yrði Eyjamönnum erfiður enda einum leikmanni færri. Ingólfur Einisson skoraði þó gull af marki um miðjan hálfleikinn þegar hann lét vaða frá miðjum vellinum og í netið fór boltinn, af tæplega 60 metra færi en undan sterkum vindi. Undir lokin tókst gestunum svo að bæta við fimmta markinu og þar við sat. Lokatölur 2:5 og það verður því Víkingur frá Ólafsvík sem verður í hattinum þegar dregið verður í 32ja liða úrslitum bikarkeppninnar.

