Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

2-1 sigur á Hvöt í Lengjubikarinum

01. maí 2010 klukkan 18:01
Víkingar og Hvöt frá Blönduósi áttust við í fjögurra liða úrslitum Lengjubikarsins á gervigrasvellinum í Laugardal í dag. Það var blíðskapar veður þegar Halldór Breiðfjörð flautaði leikinn á, glampandi sólskin og örlítill vindur. Leikurinn fór fjörlega af stað og var ljóst að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt enda sæti í úrslitum í boði fyrir sigurliðið.

Byrjunarlið Víkings:
Einar Hjörleifsson, Bega, Tomasz Luba, Brynjar Kristmunds, Alfreð Hjaltalín, Brynjar Gauti, Dominik, Edin Beslija, Eldar Masic, Þorsteinn Már, Aleksandrs Cekulajev

Varamannabekkur:
Andri Freyr Hafsteinsson , Fannar Hilmarsson, Jón Haukur Hilmarsson, Ólafur Hlynur Illugason, Sindri Hrafn Friðþjófsson.

Hvatarmenn fengu fyrsta alvöru færið strax í byrjun leiks en tókst sem betur fer ekki að nýta sér það og varnarmenn Víkings hreinsuðu boltann frá. Baráttan á miðjum vellinum var mikil og var hart barist. Hvatar-menn voru þó fyrr til að skora í leiknum en það gerðu þeir um miðbik fyrri hálfleiks eftir góða fyrirgjöf frá hægri vængnum. Staðan var 1-0 í hálfleik og gengu Víkingar niðurlútir af velli enda ekki sáttir með eigin frammistöðu.

Annað horfði við í síðari hálfleik. Víkingar komu mjög ákveðnir til leiks og voru ekki lengi að jafna metin. Þar var að verki fyrirliðinn Brynjar Gauti Guðjónsson sem skallaði boltann framhjá Atla Jónassyni markverði Hvatar af harðfylgi. Fannar Hilmarsson gerði svo sigurmarkið eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Markið hans Fannars var einnig með skalla en töldu margir að hann hefði verið rangstæður. Línuvörðurinn hélt hins vegar flagginu niðri og markið stóð. Víkingar voru með yfirhöndina allan síðari hálfleikinn og sigurinn í raun aldrei í hættu. Hvatar menn áttu þó skot í þverslánna en Einar var vel á verði í markinu.

2-1 sigur staðreynd sem þýðir að Víkingar spila til úrslita gegn Völsungi næstkomandi fimmtudag. Völsungur vann í dag BÍ/Bolungarvík í framlengdum leik.

 
Fannar kom inn á í dag og skoraði sigurmark Víkings.
 
Guđný í Knarrartungu
Góður leikur í dag :) En úrslitaleikurinn er á laugardaginn, held ég, en á fimmtudaginn byrjar Visa-bikarinn, ekki satt??? :)
#1
02. maí 2010 klukkan 00:17
Nei, við eigum leik í Visa-bikarinum á laugd. Úrslitaleikurinn var upphaflega settur í dag en verður þess í stað á fimmtudag. Held ég sé ekki að ljúga neitt varðandi það. En nánari upplýsinga er að vænta hérna á síðunni :)
#2
02. maí 2010 klukkan 11:06

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?