Sigur gegn ÍH í ćfingaleik (3-0)
21. febrúar 2010 klukkan 18:05
Víkingar báru í dag sigurorð af ÍH 3-0 í hörkuleik sem fram fór á gervigrasvellinum í Laugardalnum í dag. Það voru þeir Þorsteinn Már Ragnarsson, Almir Cosic og Ingólfur Kristjánsson sem skoruðu mörk Víkinga í dag. Staðan í hálfleik var 2-0 Víkingum í hag en síðari hálfleikur var einnig mjög fjörugur og fengu Víkingar fullt af færum til þess að bæta fleiri mörkum við. Það var þó varamaðurinn og markvörðurinn Ingólfur Kristjánsson sem innsiglaði sigurinn með góðu marki eftir að hafa fylgt eftir hornspyrnu okkar manna. Ingólfur var svo settur í markið 5. mínútum síðar og Einar Hjörleifsson fór í hægri bakvörð. Hópurinn er sem fyrr frekar þunnur en í dag vantaði; Brynjar Gauta sem var meiddur, Fannar Hilmars sem enn er að jafna sig eftir aðgerð, Aleksandrs Cekulajevs sem væntanlegur er til landsins í næstu viku.
Byrjunarlið: Einar í markinu, Bega og Tomasz í miðvörðum, Ólafur Hlynur (V) og Alfreð Hjaltalín (H) í bakvörðunum. Á hægri væng var Andri Hafsteins, Sindri Hrafn á þeim vinstri, Ejub djúpur á miðjunni, Almir Cosic og Dominik fyrir framan hann en Þorsteinn einn á toppnum.
Bekkurinn: Ingólfur Kristjánsson, Jón Haukur Hilmarsson og Brynjar Kristmundsson.

