6-3 á móti Keflvíkingum í fjögurra liđa úrslitum í Futsal
10. janúar 2010 klukkan 20:44
Víkingar lutu í gær í lægra haldi fyrir Keflvíkingum í fjögurra liða úrslitum í futsal en leikið var í Laugardalshöll. Víkingar tefldu fram ungu liði en hópurinn var skipaður eftirfarandi leikmönnum. Einar Hjörleifsson, Suad Begic, Dominik Bajda, Alfreð Hjaltalín, Ólafur H. Illugason, Þorsteinn Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson og Brynja Kristmundsson. Í hálfleik var staðan 3-2 Víkingum í vil en Keflvíkingar náðu að minnka muninn í eitt mark áður en flautan gall eftir að Víkingar hefðu komist í 3-1. Víkingar fengu hættulegt færi strax í upphafi seinni hálfleiks en Keflvíkingar voru fyrri til að skora og stuttu seinna komust þeir í 4-3 og óhætt er að segja að þeir hafi haft heppnina með sér. Strákarnir úr Bítlabænum komust svo í 5-3 með frábæru marki úr ótrúlega þröngu færi. Eftir að hafa náð tveggja marka forystu reyndu Keflvíkingar bara að láta tímann líða út og koma í veg fyrir að Víkingar næðu að minnka muninn. Guðmundur Steinarsson skoraði svo sjötta úr vítaspyrnyu þegar innan við 1 mínúta var til leiksloka.
Brynjar Gauti(Þorsteinn), Alfreð og Ólafur Hlynur skoruðu mörk Víkinga í gær og liðið barðist vel frá upphafi leiks. Sérstaklega gaman var að fylgjast með Suad Begic sem hefur ekki gleymt neinu og keppnisandinn ávallt í fyrirrúmi. Einar varði einnig vel og voru Víkingar hreinlega óheppnir að fá ekki eitthvað meira út úr þessum leik.

