Lokahóf Víkings Ólafsvíkur 2009
06. október 2009 klukkan 17:56
Lokahóf Víkings var haldið með pomp og prakt síðastliðið laugardagskvöld í Félagsheimilinu Klifi Ólafsvík. Útnefndir voru efnilegustu- og bestu leikmennirnir auk þess sem sem markhæsti leikmaður liðsins fékk viðurkenningu. Veislustjóri kvöldsins var Gunnar Örn Arnarson og á boðstólunum voru dýrindis krásir sem reiddar voru fram af sælkerakokkunum Alla Netó, Lalla Löggu og Stebba Fera(Furu:)
Efnilegsti leikmaður Víkings árið 2009 var kjörinn Brynjar Gauti Guðjónsson en auk þess að spila með Víkingum tók Brynjar þátt í hinum ýmsu verkefnum með U-18 landsliði Íslands þar sem hann var fastur byrjunarliðsmaður.
Bestur að mati leikmanna Víkings var kosinn Tryggvi Hafsteinsson sem spilaði vel í hægri bakvarðarstöðu liðsins á liðnu sumri. Tryggvi sem undanfarin sumur hefur glímt við þráðlát meiðsli hélt sér heilum í allt sumar og spilaði nær alla leiki liðsins.
Markahæsti leikmaður liðsins var svo Fannar Hilmarsson með 6 mörk og fékk hann viðurkenningu fyrir þann glæsilega árangur. Ekki er hægt að segja að Fannar sé að upplagi framherji en hann fyllti svo sannarlega í skarð Josip Marosevic sem yfirgaf liðið á miðju sumri.
Í ræðu formanns (Jónas Gestur) kom svo fram að nokkrir leikmenn liðsins hefðu skrifað undir nýja samninga en þeir eru; Þorsteinn Már Ragnarsson, Brynjar Gauti Guðjónsson og Fannar Hilmarsson. Það er nokkuð ljóst að mikilvægt er að liðið haldi sem flestum leikmönnum frá liðnu sumri til að byggja liðið upp að nýju og koma því upp um deild sem allra fyrst.
Undirritaður vill svo þakka öllum ánægjulegar stundir og samstarf á sumrinu sem nú er liðið.
Gunnar Örn Arnarson

Tryggvi,Brynjar og Fannar taka við viðurkenningum

Tryggvi og Guðný tóku lagið Jónas fékk derhúfubikarinn fyrir flottasta rauða spjaldið.

Þessir vildu ekki myndatöku. Tapliðið í Ungir vs. Gamlir
Vinningsliðið - "Gamlir"