Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

2. flokkur karla Íslandsmeistarar í Futsal

17. febrúar 2008 klukkan 23:45
Í dag varð Snæfellsnes Íslandsmeistari í Futsal innanhúsknattspyrnu og þar sem þetta er nýtt mót er liðið fyrsti Íslandsmeistari í þessum aldursflokk.

Undirritaður fór á úrslitakeppnina og fylgdist með liðinu í gegnum mótið. Liðið var lang besta lið mótsins að mínu mati. Leikmennirnir voru góðir, héldu bolta vel og hafa mjög góða tækni. Sterkir mótherjar þeirra komust lítt áleiðis gegn þeim. Sérstaklega fannst mér fyrirliðinn Þorsteinn Már Ragnarsson spila vel og markvörðurinn Ingólfur Kristjánsson hirti allt sem á markið kom nema eitt skot frá hinu liðinu mínu í mótinu Val. Í úrslitunum í dag voru tveir þriggja liða riðlar og var Snæfellsnes í riðli með Val og nöfnum okkar Víking R. Hinn riðilinn skipuðu lið Sindra, ÍR og Fylkis. Snæfellsnes gekk mjög vel strax í byrjun og sigraði Val með þremur mörkum gegn einu. Það voru ekki margar mínuturnar liðnar þegar staðan var orðin 2 - 0 fyrir okkar mönnum og skoruðu Þorsteinn og Heimir mörkin. Valur minnkaði muninn í 2 - 1 í byrjun seinni hálfleiks og áður en yfir lauk bætti Þorsteinn 3-ja markinu við úr vítaspyrnu. Valur vann síðan Víking R með þremur mörkum gegn tveimur og það þýddi það að Víking Ó. nægði jafntefli gegn Víking R eða þá að Víkingur R. mátti ekki vinna með fleiri mörkum en einu til að Víkingur kæmist í undanúrslit. Leikurinn gegn Viking R. var jafn, en samt fannst mér aldrei vera hætta á einhverju óæskilegu tapi. Enda fór svo að Víkingur Ó. lagði nafna sína Víking R. með tveimur mörkum Heimis. Víkingur var núna kominn í undanúrslit og mótherjinn var Fylkir sem hafði unnið hlutkesti við Sindra um það hvort liðið kæmist áfram. Bæði liðin voru með jafnmörg stig og markatala beggja var 3 - 3. Fylkisliðið virkaði líkamlega sterkt og baráttuglatt og leist mér svona rétt mátulega á þá, en drengirnir í 2.flokknum kunna sitt fag og lögðu þá 2 - 0 sem mér þótti í minnsta lagi. Mörkin gerðu Þorsteinn úr víti og Dominik. Nú var sú staða komin upp að Snæfellsnes var komið í úrslit í Íslandsmóti og annað sinn í sömu vikunni. 5.fl.kv. spilaði til úrslita við KS fyrr í vikunni og beið lægri hlut 0 - 5. Stóru liðin í kvennaboltanum Valur, Breiðablik, KR, Fjölnir, Keflavík og Stjarnan náðu ekki svona lagt eins og stelpurnar í 5.flokknum. Mikil efni þar á ferð.
 
Nú var beðið eftir úrslitum úr leik Vals og Víkings R. og fljótlega kom í ljós að draumaúrslitaleikur var framundan fyrir undirritaðann þar sem liðin mín tvö Snæfellsnes ( "A.K.A."Víkingur Ó.) og Valur komust í úrslitaleikinn.  Valsmenn mættu mjög grimmir til leiks og ætluðu ekki að tapa aftur fyrir strákunum og mátti sjá þá pressa þá framar en í fyrri leiknum. En í okkar liði eru leikmenn sem hafa tækni, halda bolta vel og vinna vel saman. Heimir náði undir lok hálfleiksins að skora mark með harðfylgni og það gladdi foreldra hans mjög mikið sem voru á meðal áhorfenda og pabbinn nýkominn til að sjá soninn blómsta. Í upphafi seinni hálfleiks lenti Einar Marteinssyni og Heimi eitthvað saman og enduðu ósköpin með því að dómaratríóið sendi þá báða útaf með rautt. Brynjar Gauti skoraði síðan annað markið og var það af ódýrari gerðinni. Þorsteinn fór síðan með stuttu millibili á vítapunktinn og skoraði tvö mörk til viðbótar af öryggi. Drengurinn er að verða virkilega góð vítaskytta. Undir lokin fengu Víkingar eitt víti til viðbótar og fór Brynjar Kristmunds á vítapuntinn og skoraði af öryggi. Niðurstaðan var því 5 - 0 sigur á Val og Íslandsmeistaratitill í höfn. Sá annar sem kemur á Snæfellsnes í knattspyrnu. 4.flokkur Grundarfjarðar varð Íslandsmeistari fyrir tveimur eða þremur árum í 7 manna bolta og í dag voru tveir leikmenn þess liðs að verða Íslandsmeistarar í annað sinni. Þetta eru þeir Brynjar Kristmundsson og Dominik.

Helgi Kristjánsson
 
Guđný, mamma hans Brynjars Gauti
MEIRIHÁTTAR!!!

INNILEGA TIL HAMINGJU STRÁKAR, ÉG ER SKO ALVEG AÐ RIFNA ÚR STOLTI AF YKKUR ÖLLUM, VÆRI EKKI MONTNARI ÞÓ ÉG ÆTTI YKKUR ALLA
#1
18. febrúar 2008 klukkan 01:14
 
Jónas Gestur Jónasson
Frábær árangur hjá strákunum, þarna sést hvað hægt er að gera með vinnu og dugnaði leikmanna ásamt leiðbeiningum þjálfarans.
Það var einnig frábær árangur hjá 5.fl. kvenna Snæfellsnes sem hafnaði í 2. sæti á laugardaginn í Futsal. Þær töpuðu fyrir KS í úrslitaleik eftir að hafa unnið Breiðablik, Val og Fram.
Til hamingju knattspyrnufólk á Snæfellsnesi.
#2
18. febrúar 2008 klukkan 19:38
 
Viđar Ingi Pétursson
Algjörlega frábært ! Ekki á hverjum degi sem Íslandsmeistaratitill ratar á nesið. Þessu ber að fagna. Innilega til hamingju strákar. Come on you blues !
#3
25. febrúar 2008 klukkan 11:52

Skrifa athugasemd

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?