Leikmenn mfl. Víkings

EinarIngólfurEmirAntonSindri HrafnÓlafur HlynurDominikAlfređJón HaukurEldarGuđmundur SteinnFannarTomaszEdin BesjaGummi MaggHelgi ÓttarrBjössi Páls

www.vikingurol.is


ArtjomsEdinIMG_8802IMG_8801IMG_8416IMG_8414BK mark

Víkingur Ó - Höttur. Fer fram á Sunnudag 27 maí. Kukkan 15:00.

26. maí 2012 klukkan 13:49
Það er búið að fresta leik Víkings Ó og Hattar til kl. 15.00 á morgun sunnudag vegna veðurs.

 

Leik frestađ. Breyting!!!

26. maí 2012 klukkan 13:29
Leikurinn sem átti að fara fram í dag laugardaginn 26.maí kl: 14:00 hefur verið frestað vegna veðurs fram á sunnudaginn 27.maí til kl 15:00 
Látum þetta berast og mætum svo galvösk á morgun og hvetjum strákana til sigurs.

Breyting hefur verið gerð. Leikurinn fer fram kl 15:00 á morgun sunnudag 27.maí.  

1.deild. Tindastóll - Víkingur Ó 0-1

19. maí 2012 klukkan 18:28

Víkingur Ó gerði góða ferð norður í land í dag eða nánar tiltekið til Sauðárkróks og vann lið heimamanna Tindastól með einu marki gegn engu. Tindastóll náði undirtökunum í byrjun leiks, en á 28.mínútu skoraði Guðmundur Steinn Hafsteinsson eina mark leiksins fyrir Víking Ó með góðu skoti í fjærhornið. Eftir markið tóku Víkingarnir við sér og héldu undirtökunum út leikinn ef marka má umsögn fótbolta.net frá leiknum.

Þetta voru þrjú kærkomin stig í safnið.

Næsti leikur er um næstu helgi á Ólafsvíkurvelli gegn nýliðum Hattar frá Egilsstöðum sem hafa byrjað mótið frábærlega.
Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr

Bikarkeppni KSÍ 32. liđa úrslit | Víkingur Ó - ÍBV

18. maí 2012 klukkan 12:34

 

Við fengum erfiðan leik í bikarkeppninni, Pepsideildarlið ÍBV kemur í heimsókn til okkar á Ólafsvíkurvöll.
Það verður gaman að fá okkar fyrrum félaga Magga Gylfa og Brynjar Gauta í heimsókn.

Leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram 6 og 7. júní næstkomandi.

Nú er um að gera að fjölmenna á völlinn og horfa á skemmtilegan bikarleik.
 

 

Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Nćsti leikur á móti Tindastól á Sauđárkróki. Laugardaginn 19 maí, klukkan 16:00.

18. maí 2012 klukkan 10:56
Laugardaginn 19. maí munum við heimsækja Tindastól á Sauðárkróki. Leikurinn hefst klukkan 16:00.

Ef fólk á leið norður eða býr þarna í nágrenninu, þá er um að gera að skella sér á völlinn og horfa á strákana spila. Þetta er annar leikurinn hjá okkur í deildarkeppninni.

Við gerðum jafntefli í fyrsta leik á móti Fjölni heima, en Tindastólsmenn töpuðu á útivelli á móti Haukum Hafnarfirði. Þannig að það má búast við hörku spennandi leik, þar sem bæði liðin munu reyna að taka 3 stig út úr þessum leik.

Við sendum strákunum góða strauma norður og vonum að stiginn þrjú verði okkar.
Endilega kíkið á heimasíðu Helga Bjargar,  http://helgik.bloggar.is/ 
Þar er mikill fróðleikur um fyrri viðureignir á móti Tindastól.

Áfram
Víkingur.
Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Sigur á móti Ćgi Ţorlákshöfn.

17. maí 2012 klukkan 16:19
Við fórum í heimsókn til Þolákshafnar og öttum kappi við Ægismenn í 2 .umferð bikarkeppni KSÍ.

Leikurinn fór fram við góðar aðstæður, þokkalegt veður og völlurinn góður. En það kólnaði aðeins í veðri þegar líða tók á leikinn.

Leikurinn fór fjörlega af stað og var greinilegt að Ægismenn ætluðu ekki að gefa neitt eftir í baráttu við okkur. Þjálfari Ægismanna er okkur Víkingum að góðu kunnur en það er enginn annar en Alfreð Elías Jóhannsson okkar fyrrum liðsfélagi. 

Eins og við var að búast vorum við sterkari aðilar í leiknum og fór það svo að við unnum leikinn sannfærandi 1-4
Mörkin gerðu
0-1 Edin Beslija (28.mín, víti)
0-2 Eldar Masic  (35.mín)
0-3 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (45.mín)
0-4 Guðmundur Magnússon (61.mín)

1-4 Arilíus Marteinsson (66.mín)
  Fyrir Ægi.

Gaman var að sjá hvað margir af stuðningsmönnum okkar komu og fylgdu liðinu eftir. Vonandi verður áframhald á því í sumar. Að fara að horfa á Víkings liðið spila er frábær skemmtun.

Hægt er að lesa nánar um leikinn á heimasíðu Helga Bjargar, virkilega ítarleg og skemmtileg lesning.
http://helgik.bloggar.is/ 
 

Netvarp | Ćgir Ţ. - Víkingur Ó.

16. maí 2012 klukkan 17:03

 
Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Bikarleikur í Ţorlákshöfn | Ćgir - Víkingur Ó.

15. maí 2012 klukkan 14:41
Jæja, kæru félagar þá er það bikarleikur á morgunn. Bikarkeppni KSÍ 2.umferð. Ægir - Víkingur Ó á miðvikudagskvöld 16.maí á Þorlákshafnarvelli kl. 19:00. 

Nú er um að gera að fjölmenna á völlinn, stutt frá Reykjavík. 
Það er alltaf gaman að mæta á völlinn og hitta gamla vini og kunningja.

Koma svo, með jákvæðni og gleði að vopni. 

Áfram Víkingur.
Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Clark Keltie í Víking Ó.

15. maí 2012 klukkan 11:26
Víkingar sömdu í gær við enska miðju- og varnarmanninn Clark Keltie en hann mun leika með liðinu út þetta tímabil. Keltie var á mála hjá Þórsurum á síðasta ári þar sem hann lék 13 leiki og skoraði eitt mark. 

Keltie sem er á 28. aldursári á að baki 130 leiki með Darlington auk þess sem hann hefur spilað með liðum á borð við Rochdale, Chester City, Gateshead og Lincoln.

Vikingurol.is býður Keltie velkominn í Ólafsvíkina.
Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Ungir og efnilegir leikmenn framlengja samninga sína viđ Víking.

15. maí 2012 klukkan 00:55
Vikingur Ólafsvík hefur framlengt samningum við nokkra unga og efnilega leikmenn.

Steinar Már Ragnarsson  framlengdi út árið 2013.

Alfreð Már Hjaltalín framlengdi út árið 2014.

Kristinn Már Pétursson gerði samning til tveggja ára eða út árið 2013. 

Þetta eru gleðitíðindi fyrir liðið og má með sanni segja að framtíðin sé björt. 

Jafntefli á móti Fjölni, í fyrsta leik sumarsins.

12. maí 2012 klukkan 22:38
Jafntefli var niðurstaðan í fyrsta leik sumarsins. Leikurinn fór fram á Ólafsvíkurvelli við flottar aðstæður, gott veður og þokkalegt ástand á vellinum.

Við byrjuðum leikinn af miklum krafti og vorum við talsvert ógnandi í upphafi og hefðum við hæglega getað sett tvö mörk snemma leiks. En við fengum dæmda vítaspyrnu á 40 mínútu þegar Guðmundur Steinn var togaður niður í teignum. Edin Beslija steig á punktinn og skoraði nokkuð örugglega.

  Mikið jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik og var talsverð stöðu barátta. Sóknir Fjölnismanna þyngdust og náðu þeir að opna vörn okkar nokkrum sinnum. Það fór svo að Fjölnismenn skoruðu og jöfnuðu metin á 54, mínútu og var þar á ferðinni Ómar Hákonarson. 

Einar Hjörleifsson, fór fyrir okkar mönnum, og varði nokkrum sinnum meistaralega og kom í veg fyrir að Fjölnismenn tækju öll 3 stigin með sér suður.

Niðurstaðan í dag var jafntefli og verður að segja að það hafi verið nokkuð sanngjarnt.
En mótið er rétt að byrja og vonandi eigum við eftir að sjá fullt af skemmtilegum leikjum í sumar. 


Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Bein netlýsing | Víkingur Ó. - Fjölnir

12. maí 2012 klukkan 12:55
 

 
Margir hafa spurt að því hvort það verði ekki textalýsing í dag frá leik Víkings Ó og Fjölnis. Þessa stundina eru tæknimenn að vinna í því að græja útvarpslýsingu hér á heimasíðunni. Ef það tekst ekki þá verður textalýsing. Þannig að áhugasamir geta andað léttara!

Vonandi tekst þetta allt saman.

Annars flott fótboltaveður hér í Ólafsvík. Logn og smárigning var í morgun og völlurinn flottur miðað við árstíma. Enginn meiddur leikmaður í liði Víkings Ó og einn í leikbanni (Helgi Óttarr Hafsteinsson). Minnum svo á HASHTAG Víkings Ó. á twitter sem er #Vikingurol 

Byrjunarliðin má sjá hér

Smelltu hér til að hlusta á beina lýsingu frá leiknum (útsending hefst kl. 14:00)

Find Us on Facebook Find Us on Youtube Find Us on Flickr 

Nćsti leikur

Ólafsvíkurvöllur
                1. deild karla 2012
             Víkingur Ó. vs Höttur
    Ólafsvíkurvöllur | 27. maí kl 15:00

Víkingur Ólafsvík st. 1928

577556_3782698606627_1251829435_33583931_178319412_nÓlafsvíkurvöllur vor 2011559500_2988034586161_1420962830_32146045_1570523322_n542100_2996740963815_1420962830_32150703_1667197634_n551945_2999364189394_1420962830_32152173_1212911091_nChampioneVíkingur Ó 2011

Könnun

Í hvađa sćti lendir Víkingur Ólafsvík sumariđ 2012?