Herrakvöld Víkings | 25. febrúar 2012
Hið árlega herrakvöld Víkings og firmakeppnin í knattspyrnu verða haldin laugardaginn 25. febrúar næstkomandi. Víkingurol.is skorar á Herramenn að taka kvöldið frá enda kvöldið margrómað fyrir góðann mat og skemmtun.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Víkingar mćta Leiknismönnum í dag | Futsal undanúrslit
Víkingurol.is náði í skottið á Alfreð Má Hjaltalín sem var í óðaönn að undirbúa sig fyrir átök dagsins. "Mér líst bara ljómandi vel á þennan leik, stemmningin er góð og við förum fullir sjálfstrausts inn í leikinn. Okkur langar auðvitað í úrslitin til að bæta upp fyrir tapið í fyrra." Eldar og Edin eru þar að auki komnir inn í hópinn þar sem þeir komu til landsins núna á miðvikudaginn. "Þeir koma til með styrkja okkur, þeir eru báðir mjög teknískir auk þess sem þeir skilja futsal leikinn mjög vel". Víkingurol.is hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna í höllina enda sjón sögu ríkari.
Futsal | Toppsćti riđilsins tryggt fyrir síđasta leik
Leikurinn hefst kl. 13:00 og hvetur vikingurol.is stuðningsmenn til að taka sér frí frá jólabakstrinum og öðru almennu jólastússi enda nægur tími til stefnu. Stöðuna í riðlinum má sjá hér fyrir neðan.

Futsal | Stađan og nćstu leikir
Víkingar heimsćkja Hvíta Riddarann / Aftureldingu
Leikurinn hefst klukkan 19:40 og hvetur vikingurol.is stuðningsmenn Víkings syðra til að fjölmenna.
Fyrsti leikur Víkings í riðlinum endaði með 9-3 sigri liðsins á KB og vonandi ná strákarnir að fylgja því eftir í kvöld.
Þessi leikur átti að fara fram í Ólafsvík en var færður til Mosfellsbæjar á elleftu stundu.

"Ejup hefur kennt mér alveg heilan helling"
Víkingurol.is setti sig í samband við Þorstein Má Ragnarsson sem í gær skrifaði undir samning hjá Íslandsmeisturum KR. Hann var að vonum ánægður með nýja liðið og hlakkar til að takast á við nýja áskorun.
Hvernig er að vera genginn til liðs við ríkjandi Íslandsmeistara? Það er mjög skemmtilegt og spennandi.
Fram kom í fjölmiðlum að þú hefði einnig áhuga á að ganga til liðs við Stjörnuna, hvað varð til þess að þú valdir KR? Þetta eru bæði mjög góð lið og valið var mjög erfitt. Mér leist mjög vel á þjálfarann og leikmennina hjá KR og tel þá geta hjálpað mér við að þroskast sem leikamann. Verð reyndar líka að viðurkenna að ég var ekki mjög spenntur fyrir gervigrasinu.
Úrvalsdeildarliðin hafa ekki farið leynt með áhuga sinn á þér undanfarin tvö ár, hvers vegna ákvaðstu að núna væri rétti tíminn til að breyta? Ég tel bara vera komin tími til á breytingar hjá mér. Er búinn að vera hjá Víking Ó í fimm frábær ár og því gott skref núna fyrir mig að fara í Pepsi-deildina.
Hefur dvöl þín hjá Víking þroskað þig sem leikmann að þínu mati? Já klárlega. Ejup hefur kennt mér alveg heilan helling og gert mig að þeim leikmanni sem ég er í dag.
Er þessi ákvörðun liður í því að reyna feta þig nær sæti í U-21? Nei ég hugsaði lítið út í það þegar þessi ákvörðun var tekin svo verð ég hvort sem er of gamall í það á næsta ári.
Hefur þú hitt þjálfarann? (Rúnar Kristinsson), ef svo er, hvernig líst þér á hann? Já ég hef hitt hann. Mér list mjög vel á hann og hann er góður þjálfari.
Nú er KR líklega með breiðasta hóp deildarinnar og samkeppnin eftir því, óttastu það ekkert? Ég myndi kannski ekki segja að ég óttist hana en ég veit það eru margir góðir leikmenn þarna og ég þarf að leggja hart að mér til þess að komast í liðið.
Verður ekki skrítið að spila á heimavelli sem þú sérð ekki um að slá sjálfur? Jú það verður skrítið en ég hef fulla trú á vallarstarfsmönnum KR til að slá völlinn vel. Annars stekk ég bara á vélina og kenni þeim handtökin.
Ertu búinn að setja þér einhver langtíma markmið með nýju liði? Nei ég er ekki búinn af því.
Hvenær er fyrsta æfing með nýju liði? Hún verður á Föstudaginn og æfingaleikur á laugardaginn.
Ef þú lítur til baka á ferilinn með Víking, hvað myndir þú segja að stæði upp úr? Það er klárlega tímabilið 2010 þegar við unnum 2. deild og komust í undanúrslit í bikarnum. Það var alveg frábært sumar. Svo vil ég að lokum nýta tækifærið og þakka öllum leikmönnum, þjálfurum, stjórnarmönnum og stuðningsmönnum Víkings Ó. fyrir þann frábæra tíma sem ég átti hjá liðinu.
(Mynd: Þröstur Albertsson, 2010).
Ţorsteinn úr Víking Ó. í KR
Þorsteinn Már Ragnarsson gekk í dag til liðs við
Knattspyrnufélag Reykjavíkur (KR) en liðin komust að samkomulagi um vistaskipti
Þorsteins fyrr í dag.
Ljóst er að mikil eftirsjá verður af Þorsteini enda hefur
hann verið einn af burðarásum liðsins undanfarin ár þrátt fyrir ungan aldur.
Hann á að baki 89 leiki í deild og bikar þar sem hann hefur skorað 28 mörk. Í
sumar lék Þorsteinn 18 leiki með Víking og skoraði 6 mörk áður en hann var
lánaður Raufoss í Noregi.
Vikingurol.is óskar Þorsteini velgengni á nýjum vettvangi.
Mynd: Þröstur Albertsson
3-9 sigur á KB í futsal
Víkingar báru í dag sigurorð af KB í fyrsta leik futsal-keppnistímabilsins 3-9. Leikið var í Kórnum Kópavogi þar sem KB-menn leika heimaleiki sína í riðlinum. Staðan í hálfleik var 2-4 Víkingum í vil þar sem Steinar Már Ragnarsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Tomasz Luba skoruðu sitt markið hvor auk þess sem KB-menn urðu fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Víkingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og sáu Guðmundur Magnússon, Fannar Hilmarsson, Ragnar Smári Guðmundsson, Ólafur Hlynur Illugason og Heimir Þór Ásgeirsson um að bæta við fimm mörkum. Staðan var því 9-2 allt þar til í lokin þegar KB-menn minnkuðu muninn og þar við sat. Frammistaða liðsins í heild var góð, Einar var að vanda öruggur í markinu auk þess sem Ejub var duglegur að rótera útispilurunum.
Víkingar fara vel af stað og ljóst að þeir ætla fylgja eftir góðum árangri frá síðustu keppni þar sem liðið hafnaði í öðru sæti. Næsti leikur verður háður í Ólafsvík þar sem Víkingar fá Aftureldingu/Hvíta Riddarann í heimsókn þann 30. nóvember.
Guđmundur Steinn í Víking og Brynjar í Val
Víkingur Ó og Valur hafa komist að samkomulagi um skipti á leikmönnunum Brynjari Kristmundssyni og Guðmundi Stein Hafsteinssyni. Guðmundur Steinn Hafsteinsson hefur gert tveggja ára samning við Víking Ólafsvík en hann spilaði 21 leik og skoraði 7 mörk á liðnu keppnistímabili.
Stjórn knd. Víkings Ólafsvík þakkar Brynjari Kristmundssyni fyrir hans framlag til félagsins en þrátt fyrir ungan aldur hefur Brynjar spilað yfir 100 leiki með Víking.

Guðmundur Steinn í leik gegn Þrótturum í sumar (Mynd: Þröstur Alberts)
Ćfingar hjá mfl. hefjast á fimmtudag
Æfingar meistaraflokks karla hefjast fimmtudaginn 3.nóvember kl:19:00. Leikmenn hafa fengið tæplega tveggja mánaða hlé og kominn tími til að teygja úr sér og taka á því.Á meðfylgjandi mynd má sjá Einar moka sparkvöllinn fyrir æfingu fyrr á þessu ári. Vonandi kemur ekki til þess að strákarnir þurfi að moka snjó í kvöld.
Alfređ Már og Kristinn Magnús bođađir í úrtak
Alfreð Már Hjaltalín og Kristinn Magnús Pétursson voru boðaðir á úrtaksæfingar hjá yngri landsliðum Íslands. Alfreð sem er fæddur árið 1994 mun æfa með U-19 ára hópnum og Kristinn sem fæddur er árið 1996 mun æfa með U-17.
Æfingarnar munu fara fram höfuðborgarsvæðinu, annars vegar í Kórnum Kópavogi og hins vegar í Egilshöll, Grafarvogi. Kristinn Rúnar Jónsson hefur umsjón og stjórnar æfingum U-19 ára liðsins á meðan Gunnar Guðmundsson stjórnar U-17.
Vikingurol.is óskar strákunum að sjálfsögðu góðs gengis um helgina.

